Skip to main content
17. apríl 2015

Frá kjörstjórn vegna seinni umferðar rektorskjörs

Kosningu utan kjörfundar í seinni umferð rektorskjörs lýkur í dag, föstudaginn 17. apríl. Hægt er að kjósa til kl. 16.00 á upplýsingaskrifstofu í anddyri Aðalbyggingar háskólans. Kjósanda ber að framvísa persónuskilríkjum með mynd.

Mánudaginn 20. apríl fer fram seinni umferð rafrænnar kosningar til rektors Háskóla Íslands

Rafræn kosning hefst kl. 9.00 að morgni og lýkur kl. 18.00 sama dag.

Kosið er um tvo frambjóðendur, Guðrúnu Nordal, prófessor og forstöðumann Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Jón Atla Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands.

Leiðbeiningar um rafræna kosningu:

Á heimasíðu háskólans www.hi.is og í Uglu verður vefborði merktur: 

„Kosningar til rektors árið 2015 – seinni umferð. Smelltu hér til að greiða þitt atkvæði.“ Með því að smella á borðann er farið beint á kosningasíðu. Kjósendur verða að nota aðgangs- og lykilorð sín að Uglu til að svæðið opnist. 

Tölvuver og aðstoð við rafræna kosningu:

Tölvuver 204 á Háskólatorgi verður frátekið sérstaklega fyrir kjördag. Þar mun starfsmaður frá Reiknistofnun háskólans vera til staðar og veita aðstoð ef tæknileg vandamál koma upp. 

Að auki er Tölvuþjónustan á Háskólatorgi opin frá kl. 8.00-16.00, sími: 525-4222 http://rhi.hi.is/tolvuthjonusta_rhi

Upptaka af fundi með rektorsframbjóðendum, sem fram fór í Háskólabíói fimmtudaginn 16. apríl, er nú aðgengileg á Youtube.