Fjölmiðlun í almannaþágu?
Rannsóknarsetur í fjölmiðla- og boðskiptafræðum við Háskóla Íslands, ReykjavíkurAkademían, Háskólinn á Akureyri og AkureyrarAkademían standa fyrir málþingi um fjölmiðlun í almannaþágu laugardaginn 19. nóvember í Iðnó. Þekktir fyrirlesarar frá m.a. Bandaríkjunum og norrænu löndunum, fjalla um áskoranir almannaþjónustu fjölmiðla á tímum mikilla breytinga í fjölmiðlun.
Málþingið hefst kl. 10:30. Aðgangur er ókeypis. Húsrými er takmarkað og því er vissara að skrá sig sem fyrst til að tryggja sæti. Skráning fer fram á heimasíðu málþingsins, www.fia.akademia.is
Dagskrá málþingsins:
10:30 Setningarorð – Ingunn Ásdísardóttir, formaður stjórnar ReykjavíkurAkademíunnar ses
10:35 Ávarp Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra
Fyrri hluti: Áskoranir í almannafjölmiðlun
10:45 Dr. Michael Tracey – Prófessor við Háskólann í Colorado, Boulder
The Challenges of Public Service Broadcasting – The Battle of Values
11:15 Dr. Gauti Sigþórsson – fagstjóri í miðlun við háskólann í Greenwich í London
Refrains of the Everyday: Notes on the Valuation of Public Service Media
11:45 Spurningar úr sal
12:00 Hádegisverður (gestir geta keypt léttan hádegisverð í Iðnó)
Seinni hluti: Almannafjölmiðlun á Norðurlöndunum
12:45 Dr. Henrik Søndergaard – Dósent við Kaupmannahafnarháskóla
Building Scenarios for Public Service Media in Denmark: What are the Options for Media Policy and how Does it Affect Society?
13:15 Dr. Gunn Enli – Prófessor við Oslóarháskóla
The Media Welfare State: Public Service Broadcasting in the Nordic Region
13:45 Spurningar úr sal
14:00 Pallborðserindi og umræður
Elísabet Indra Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Mengis
Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra
Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands.
Þorbjörn Broddason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands
14:25 Spurningar úr sal og umræður
15:00 Dagskrárlok
Fundarstjóri: Arna Schram, forstöðukona menningarmála í Kópavogi