Fjölmenni í HÍ á Háskóladaginn

Um fimm þúsund manns lögðu leið sína á háskólasvæðið á laugardaginn var þegar hinn árlegi Háskóladagur fór fram. Aldrei hafa fleiri heimsótt skólann á þessum degi.

Fulltrúar frá öllum fimm sviðum Háskóla Íslands kynntu fjölbreytt námsframboð háskólans, samtals nærri 400 námsleiðir í bæði grunn- og framhaldsnámi, ásamt starfsemi og þjónustu, rannsóknarstofum, tækjum og búnaði. Námskynning háskólans fór fram í Aðalbyggingu, Háskólatorgi og Öskju.

Auk þess var Háskóli Íslands með vísindasýningar í Háskólabíói og þar vakti hið landsfræga Sprengjugengi Háskóla Íslands mikla athygli. Ætla má að samtals um eitt þúsund manns hafi á tveimur sýningum fylgst með því þegar efnafræðinemarnir göldruðu fram sprengingar og litríkar efnablöndur með eftirminnilegum hætti. Í Háskólabíói var einnig boðið upp á Vísindabíó þar sem þættirnir Fjársjóður framtíðar, sem fjalla um rannsóknir vísindamanna við Háskóla Íslands, voru sýndir.

Þá vakti Vísindasmiðja Háskóla Íslands, sem opnuð var formlega í Háskólabíói á Háskóladaginn, óskipta athygli þeirra fjölmörgu barna sem heimsóttu háskólann á þessum degi. Hlutverk smiðjunnar verður að efla áhuga ungmenna á undrum vísindanna með gagnvirkum og lifandi hætti og styðja við framþróun kennslu náttúru- og raunvísinda á öllum skólastigum.

Í Háskólabíói voru einnig m.a. Háskólinn á Akureyri, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands og var samstarf þeirra og Háskóla Íslands kynnt sérstaklega.

Kristinn Ingvarsson  ljósmyndari var á ferðinni á háskólasvæðinu á laugardaginn og hann tók þær fjölmörgu skemmtilegu myndir sem sjá má hér til hliðar.

deila á facebook