Skip to main content
14. mars 2017

Fjölmenni á skattadegi Orators

Orator, félag laganema við HÍ, hélt sinn árlega skattadag sunnudaginn 12. mars í samvinnu við Deloitte. 

Rúmlega 160 manns nýttu sér aðstoð laganemanna við skattframtalið og var stanslaus straumur fólks allan daginn. Fjölmargar spurningar brunnu á gestum, m.a. um verktakagreiðslur, styrki, dagpeninga og gjafir. Þá aðstoðuðu laganemarnir fjölmarga útlendinga sem sjaldan eða aldrei hafa skilað skattframtali hér á landi. Eins mættu einstaklingar sem hafa búið eða unnið erlendis og þáðu ráðgjöf.

Fyrirhugað er að endurtaka þetta að ári enda sýnir það sig að þörfin er mikil.

Minnt er á að Orator býður upp á endurgjaldslausa lögfræðiaðstoð á hverju fimmtudagskvöldi kl. 19:30 til 22:00 í síma 551-1012.

Fjölmenni á skattadegi Orators