Skip to main content
9. apríl 2015

Fjölmenni á frumsýningu kappakstursbílsins TS15

""

Rafknúni kappakstursbíllinn TS15, sem verkfræðinemar í liðinu Team Spark við Háskóla Íslands hafa hannað, var frumsýndur að viðstöddu fjölmenni á Háskólatorgi í dag. Team Spark fer með bílinn á alþjóðlegu kappaksturs- og hönnunarkeppnina Formula Student sem haldin verður á Silverstone-kappakstursbrautinni í Englandi í júlí.

Lið frá Háskóla Íslands hafa tekið þátt í keppninni undanfarin fjögur ár en þetta verður í annað sinn sem þau mæta með fullbúinn bíl. Rúmlega hundrað lið frá háskólum víða um heim hafa tekið þátt í keppninni á Silverstone undanfarin ár en keppt er í tveimur flokkum. Í flokki 1 eru lið dæmd út frá bæði hönnun einstakra hluta bílsins og akstri hans á kappakstursbraut en í flokki 2 eru aðeins hönnun og áætlanir kynntar en ekki keppt í kappakstri. Team Spark keppir í flokki 1 í ár líkt og í fyrra en þá hlaut liðið flest stig allra liða fyrir endurnýjanleika bíls og sérstök verðlaun sem bestu nýliðar í sínum flokki.

Töluverð endurnýjun hefur orðið í liðinu á milli ára en sá tæplega 40 manna hópur úr verkfræðideildum Háskóla Íslands sem skipar Team Spark í ár er staðráðinn í að fylgja eftir góðum árangri í fyrra og hefur því lagt nótt við dag við hönnun bílsins TS15 að undanförnu. Liðið hefur m.a. unnið með nemendum við Listaháskóla Íslands en þeir komu að hönnun ytra byrðis bílsins. 

Við afhjúpun kappakstursbílsins TS15 á Háskólatorgi í dag sögðu félagar í Team Spark stuttlega frá þróunar- og hönnunarvinnunni. Bíllinn er smíðaður frá grunni og hafa öll kerfi hans verið betrumbætt frá útgáfu síðasta árs. Má þar helst nefna að bíllinn er þriðjungi léttari en í fyrra, með sjöfalt hærri spennu og þrefalt meira afl. Markmiðið með þessum breytingum er að bíllinn verði samkeppnishæfur við bíla frá bestu tækniháskólum í heimi og standist vel kröfur keppninnar í sumar. Að baki bílnum liggja yfir tíu þúsund vinnustundir og er heildarkostnaður verkefnisins um 20 milljónir króna.

Við athöfnina í dag fluttu Ragnheiður Elín Árnadóttir atvinnu- og  nýsköpunarráðherra og Nótt Thorberg, markaðsstjóri Marels og fulltrúi bakhjarla Team Spark, stutt ávörp ásamt Hilmari Braga Janussyni, forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, sem jafnframt stýrði athöfninni. Þá veitti Tryggvi M. Þórðarson, formaður Akstursíþróttasambands Íslands, Team Spark sérstaka viðurkenningu fyrir framlag liðsins til akstursíþrótta.

Að lokinni afhjúpun bílsins var frumsýnd á Háskólatorgi heimildamynd Stefáns Drengssonar um hönnun keppnisbíls síðasta árs og för Team Spark liða á Silverstone sumarið 2014. Myndin verður enn fremur sýnd á RÚV síðar í vor.

Formula Student keppnin á Silverstone-kappakstursbrautinni fer fram dagana 9.-12. júlí í sumar og munu rúmlega 30 félagar úr Team Spark halda utan með bílinn til keppninnar. Fram að þeim tíma munu nemarnir fínpússa og prófa bílinn.

Gríðarleg vinna liggur að baki hönnun og smíði bílsins og unnu Team Spark liðar nótt við dag til að ljúka honum fyrir frumsýninguna.
Gríðarleg vinna liggur að baki hönnun og smíði bílsins og unnu Team Spark liðar nótt við dag til að ljúka honum fyrir frumsýninguna.