Fjölmenni á erindi dr. Marie Fortune

Á þriðja hundrað manns sóttu í morgun málþing á vegum Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands, Fagráðs um meðferð kynferðisbrota innan Þjóðkirkjunnar og Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur í Hátíðasal Háskóla Íslands. Málþingið bar yfirskriftina ,,Kynferðisleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi“ og aðalfyrirlesari var Rev. dr. Marie M. Fortune frá FaithTrust Institute í Seattle í Bandaríkjunum.

Dr. Fortune  er einn virtasti fagaðili á sviði fræðslu- og forvarnarmála um kynferðislegt ofbeldi í Bandaríkjum. Hún er prestur og stofnandi FaithTrust Institute sem býður upp á þjálfun, ráðgjöf, kennslu og fræðsluefni í því markmiði að binda endi á kynferðislegt ofbeldi og heimilisofbeldi. Árið 1983 gaf hún út bókina „Sexual Violence. The Unmentionable Sin“ þar sem hún fjallar um kynferðislegt ofbeldi frá sjónarhóli guðfræði, siðfræði og sálgæslu. Markmið bókarinnar var að rjúfa þögnina um kynferðislegt ofbeldi innan kristinna kirkna. Fyrir sex árum gaf dr. Fortune svo út aðra bók, „Sexual Violence. The Sin Revisited“, þar sem hún endurskoðar og endurmetur stöðu þessa málaflokks innan kristinna kirkna í ljósi reynslunnar.

Mikill áhugi var fyrir erindi dr. Fortune en auk hennar fluttu þau dr. Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur við Landspítala, dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ, sr. Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúsprestur og lektor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, kennari og stjórnarmaður Blátt áfram og Drekaslóðar, og Brynhildur Flóvenz, lögfræðingur og dósent við Lagadeild HÍ, stutt erindi á málþinginu.

Dr. Fortune mun enn fremur taka þátt í námskeiði sem haldið verður í Neskirkju á morgun kl. 8:30-17. Yfirskrift námskeiðsins er ,,Kynferðisleg misnotkun og rétt viðbrögð í samhengi kirkju og trúfélaga."

Hér má nálgast nánari upplýsingar um námskeiðið.

deila á facebook