Fjölbreytt störf hjúkrunarfræðinga kynnt

Eirberg mun iða af lífi og fjöri milli kl. hálft tólf og tvö á morgun þegar nemendur á lokaári BS náms í hjúkrunarfræði bjóða til kynningar á hinum ýmsu störfum hjúkrunarfræðinga. Nýjar og hefðbundnar hliðar á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga verða kynntar. Má þar nefna þyrluhjúkrun, áfallahjúkrun, hjúkrun í heimahúsum, hjúkrun í hjálparhýsi og heilsugæsluhjúkrun.

Tryggur samstarfsmaður hjúkrunarfræðinema, hermisjúklingurinn Hermann, verður á staðnum ásamt umsjónarmanni sínum og sýnt verður hvernig hjúkrunarfræðingar bregðast við ýmsum kvillum Hermanns.

Framhaldsnámsmöguleikar í hjúkrun og ljósmóðurfræðum verða kynntir og þá munu fulltrúar heilbrigðisstofnana og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kynna störf sín.

Kynningardagurinn er liður í námskeiðinu Hjúkrun sem starfs- og fræðigrein og er þetta í annað sinn sem efnt er til hans. „Tilgangur námskeiðsins er að auka innsýn og skilning nemenda á þáttum sem hafa áhrif á störf og starfsþróun hjúkrunarfræðinga, “ segir Sigrún Gunnarsdóttir, umsjónarkennari námskeiðsins.  

„Í námskeiðinu eru kynntar kenningar, líkön og lykilhugtök um starfsumhverfi og fagmennsku og fjallað um þætti sem hafa áhrif á starfsþróun hjúkrunarfræðinga og kynntar leiðir til að móta eigin starfsþróun. Til að nemendur fái sem besta innsýn í starfsvettvang hjúkrunarfræðinga vinna þeir verkefni þar sem þeir undirbúa kynningu á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga með því að stofna til samstarfs við einn eða fleiri samstarfsaðila. Afrakstur þess samstarfs er síðan til sýnis á kynningardeginum Á krossgötum sem haldinn verður í Eirbergi á morgun,“ segir Sigrún.

Fyrir nemendurna, sem brátt fara út á vinnumarkaðinn sem útskrifaðir hjúkrunarfræðingar, hefur námskeiðið gefið nýtt sjónarhorn á framtíð þeirra í faginu. „Við höfum lært um þætti sem maður hugsar ekki um alla jafnan eins og til dæmis hvernig við sjáum fyrir okkur starfsþróun í framtíðinni. Við höfum hitt fólk sem er leiðandi í þróun hjúkrunarfræðinnar, sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga og fræðst um framhaldsmenntunarmöguleika. Þá hefur verið fjallað um sögu hjúkrunar og það hvernig menntunin og starfið hefur þróast,“ segir Garðar Örn Þórsson, formaður Curators, félags hjúkrunarfræðinema og einn þeirra nemenda sem tekur þátt  í kynningardeginum og bætir við að einnig hafi verið farið yfir lög og reglugerðir varðandi hjúkrunarstarfið og ýmsir siðferðilegir þættir þess skoðaðir.

Á krossgötum - kynning hjúkrunarfæðinema á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga verður í Eirbergi, föstudaginn 21. janúar kl. 11:30-14:00 og eru allir velkomnir.

deila á facebook