Nýverið kom út skýrslan „Fjármálakreppa á Íslandi og Írlandi: Skiptir aðild að Evrópusambandinu og evrunni máli?“ eftir dr. Baldur Þórhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðdeild Háskóla Íslands, og Írann dr. Peadar Kirby, nýráðinn gistiprófessor við sömu deild.
Í skýrslunni er fjallað um stöðu Írlands og Íslands í efnahagskreppunni. Löndin tvö eru borin saman með hliðsjón af því að Írland er aðili að Evrópusambandinu með evru sem gjaldmiðil en Ísland er utan sambandsins með eigin gjaldmiðil. Greint er hvaða áhrif þetta hefur haft á umfang efnahagskreppunnar í löndunum og getu ríkjanna til að bregðast við afleiðingum hennar.
Í skýrslunni er notast við greiningarramma smáríkjafræða um mikilvægi bandalagamyndunar fyrir smáríki. Reynsla Íslands og Írlands í bankakeppunni staðfestir að nokkru leyti staðhæfingar um mikilvægi þess að hafa efnahagslegt og pólítískt skjól þó að í því geti einnig falist umtalsverðar þvinganir.
Rannsóknin sýnir einnig að góð efnahagsstjórn og eftirlit með fjármálastofnunum er grunnforsenda þess að smáríki geti varist efnahagslegum áföllum. Kenningar um mikilvægi skjóls eða bandalagamyndunar fyrir smáríki verða því að taka tillit til innviða ríkja þegar lagt er mat á stöðu þeirra í alþjóðahagkerfinu.
Skýrslan er á ensku og er að finna á vef Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki. Financial crises in Iceland and Ireland: Does EU and Euro membership matter?
