Fimm kennarar verðlaunaðir fyrir framúrskarandi störf
Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands miðvikudaginn 1. júní. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátakisins „Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara á vefsíðunni hafduahrif.is.
Sögum þjóðþekktra einstaklinga var safnað á vef átaksins og í stuttum myndböndum sögðu þeir frá kennurum sem hafa haft áhrif á þá. Tilgangur átaksins var að vekja athygli þjóðarinnar á kennarastarfinu; hversu áhugavert og skemmtilegt það er og hversu mikil áhrif kennarar hafa á einstaklinga og samfélagið.
Viðtökurnar voru afar góðar en nærri 800 manns tóku þátt í átakinu og tilnefndu 350 kennara á öllum skólastigum. Sérstök valnefnd, skipuð sérfræðingum Menntavísindasviðs, fór yfir tilnefningarnar samkvæmt ákveðnum viðmiðum. Niðurstaðan var sú að veita fimm framúrskarandi kennurum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi viðurkenningar fyrir framlag þeirra til kennslu.
Eftirfarandi kennarar hlutu viðurkenningu að þessu sinni:
Ásthildur Kjartansdóttir, Breiðagerðisskóla
Hildur Hauksdóttir, Menntaskólanum á Akureyri
Nichole Leigh Mosty, Leikskólanum Ösp
Þorgerður Ingólfsdóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð
Örn Arnarson, Heiðarskóla – Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar