Konfúsíusarstofnunin Norðurljós við Háskóla Íslands fékk á dögunum senda veglega gjöf frá Hanban, undirstofnun kínverska menntamálaráðuneytisins. Þar voru á ferðinni 1,2 tonn af kennslubókum í kínversku á íslenskri tungu fyrir almenning.
Kennslubækurnar voru unnar í Kína og að því verki komu bæði kínverskir og íslenskir fræðimenn og þýðendur. Alls er um að ræða átta mismunandi sett af kennslubókum, þar á meðal kennslubækur fyrir jafnt fullorðna sem börn með margmiðlunardiskum, myndabækur fyrir börn ásamt orðabókum. Tilgangurinn með útgáfu kennslubókanna er að opna heim kínverskrar tungu og menningar fyrir Íslendingum en samskipti á milli þjóðanna hafa aukist töluvert á síðustu misserum.
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós hefur falið Háskólaútgáfunni að annast dreifingu á kennslubókunum. Hægt verður að nálgast þær í bókabúðum á næstunni gegn vægu gjaldi.
Geir Sigurðsson, dósent í kínverskum fræðum við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda og forstöðumaður Konfúsíusarstofnunarinnar, segir gjöfina hafa mikla þýðingu. „Tilvist þessara bóka leysir einn snúnasta vanda þess að standa að kínverskukennslu fyrir yngri skólastig. Ég sé fyrir mér að kennsla í kínversku eigi eftir að dreifast á fjölmörg stig á næstu árum, enda erum við smám saman að átta okkur á hinu stóraukna vægi sem Kína mun hafa í veröldinni á næstu áratugum. Auk þess henta margar þessara bóka fyrir sjálfsnám sem ég hygg að verði vel tekið meðal Íslendinga,“ segir Geir.
Um Konfúsíusarstofnunina Norðurljós
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós var stofnsett þann 16. maí 2008. Hún er á meðal hartnær 350 sambærilegra stofnana sem starfræktar eru við háskóla um allan heim. Tilgangur stofnunarinnar er að stuðla að námi í kínverskri tungu og fræðslu um kínverska menningu og samfélag.
Háskóli Íslands stendur að rekstri stofnunarinnar í samstarfi við Hanban, sem heyrir undir kínverska menntamálaráðuneytið, og Ningbo-háskóla sem er í samnefndri hafnar- og viðskiptaborg í Zhejiang-fylki í Kína. Samstarf háskólanna felst meðal annars í nemenda- og kennaraskiptum.
