Skip to main content
31. maí 2016

Fátækt og fúlga - Þurfalingarnir 1902

""

Út er komin bókin Fátækt og fúlga - Þurfalingar 1902 eftir þá Sigurð Gylfa Magnúson prófessor og Jón Ólaf Ísberg. Bókin er sú nítjánda í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar en röðin hóf göngu sína árið 1997 og er unnin á vegum Miðstöðvar einsögurannsókna í Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands.

Fátækt á Íslandi hefur verið íslenskum ráðamönnum hugleikið viðfangsefni allt frá landnámi. Umræðan fékk aukið vægi á dögum upplýsingarinnar og hefur löngum verið áhersluatriði í rökræðum manna á milli síðan. Árið 1902 var tekin saman að undirlagi nefndar Alþingis yfirgripsmikil skrá yfir alla þá einstaklinga á Íslandi sem þegið höfðu af sveit það árið og töldust þannig til þurfalinga.

Í bók þeirra Sigurðar og Jóns er fjallað um starf þingnefndarinnar, skráin birt í heild sinni og greint frá viðbrögðum þingheims við tillögum hennar. Hver voru örlög fátæks fólks á þessum tíma og hvernig tókst það á við fordóma samtíðar sinnar? Höfundar bókarinnar glíma við álíka spurningar þegar þeir fjalla um fátækt á Íslandi frá ýmsum hliðum.

Sigurður Gylfi Magnússon prófessor, Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis og Jón Ólafur Ísberg skoða fyrsta eintak bókarinnar, en Alþingi styrkti útgáfu hennar.
""
Sigurður Gylfi Magnússon prófessor, Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis og Jón Ólafur Ísberg skoða fyrsta eintak bókarinnar, en Alþingi styrkti útgáfu hennar.
""