Skip to main content
23. maí 2016

Fá Kiyo og Eiko Tomiyasu styrki til náms við Caltech

""

Þrír grunnnemar við Háskóla Íslands hljóta í sumar styrk til að vinna tíu vikna verkefni við California Institute of Technology – Caltech í Pasadena í Kaliforníu í Bandaríkjunum.

Nemendurnir sem halda til Caltech eru Freyja Björk Dagbjartsdóttir, nemi í efnaverkfræði, Pétur Helgi Einarsson, nemi í hugbúnaðarverkfræði, og Sólveig Ásta Einarsdóttir, nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði. 

Þessum styrkjum er nú úthlutað í níunda sinn en frá árinu 2008 hafa Háskóli Íslands og Caltech haft með sér skipulegt samstarf á sviði kennslu og rannsókna. Um er að ræða svokölluð SURF-verkefni (Summer Undergraduate Research Fellowship) hjá Caltech, en SURF gengur út á rannsóknasamstarf á milli leiðbeinanda og nemanda í grunnnámi. Frá upphafi SURF-samstarfsins 2008 hafa samtals 23 nemendur Háskóla Íslands haldið til Caltech og nú bætast þrír nemendur í þann hóp.

Caltech-háskóli er einn fremsti rannsóknaháskóli heims og skipar m.a. fyrsta sæti hins virta matslista Times Higher Education World University Rankings. Dr. Kiyo Tomiyasu, sem lést í desember sl. 96 ára að aldri, var heimskunnur vísindamaður á sviði rafmagnsverkfræði og var lykilmaður í að koma á samstarfinu milli Caltech og Háskóla Íslands. Rektor Háskóla Íslands hefur nú ákveðið að styrkirnir sem Háskóli Íslands veitir muni í virðingarskyni framvegis bera nafn hjónanna Kiyo og Eiko Tomiyasu sem sýnt hafa íslenskum nemendum við Caltech einstaka velvild í gegnum tíðina.

Frá úthlutun styrkjanna á dögunum. Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Sólveig Ásta Einarsdóttir, nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði, Freyja Björk Dagbjartsdóttir, nemi í efnaverkfræði, Pétur Helgi Einarsson, nemi í hugbúnaðarverkfræði, og Friðrika Harðardóttir, forstöðumaður Skrifstofu alþjóðasamskipta.