Evrópsk ráðstefna Stjórnmálafræðinga, ECPR European Consortium for Political Research, verður haldin dagana 25. 27. ágúst næstkomandi í Háskóla Íslands. Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður nýrra rannsókna á sviði stjórnmálafræði í 2500 erindum á um 500 málstofum undir um 60 efnisflokkum.
Skráðir þátttakendur eru um 2300 talsins og er hér um að ræða stærstu alþjóðlegu ráðstefnu sem haldin hefur verið á Íslandi.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu ráðstefnunnar.
