Erindi Chomskys á myndbandi

Málvísindamaðurinn og samfélagsrýnirinn dr. Noam Chomsky, prófessor emeritus við MIT-háskólann í Bandaríkjunum, flutti erindi fyrir fullum sal í Háskólabíói föstudaginn 9. september. Chomsky var öndvegisfyrirlesari Hugvísindasviðs á aldarafmæli Háskóla Íslands.

Erindi Chomskys bar yfirskriftina ,,The two 9/11s: Their historical significance“ og þar fjallaði Chomsky um stöðu heimsmálanna, meðal annars um mismunandi þýðingu dagsetningarinnar 11. september í Bandaríkjunum og Chile. Þá gerði hann morðið á Osama bin Laden að umtalsefni og átaldi bandarísk stjórnvöld fyrir að hafa tekið hann af lífi í stað þess að handtaka hann og rétta yfir honum.

Erindið flutti Chomsky í stóra sal Háskólabíós og var hann þétt setinn. Þar að auki fylgdust gestir með erindinu á tjaldi í sal 1 og á skjáum í anddyri Háskólabíós. Þeir sem ekki sáu erindið geta nú nálgast það á afmælisvef Háskóla Íslands.

Noam Chomsky flutti einnig erindi í tengslum við námskeið við Hugvísindasvið þar sem fjallað er um áhrif hugmynda hans. Erindið nefndi hann „The ´Generative Enterprise´: Its origins, goals, prospects“. Þar fór Chomsky yfir hugmyndir sínar í málvísindum en hann lagði grunninn að þeirri stefnu í málvísindum sem hefur verið nefnd málkunnáttufræði á íslensku. Sú stefna olli straumhvörfum í málvísindum, en eitt meginatriði hennar er að öll tungumál séu sama eðlis, maðurinn hafi meðfæddan hæfileika til að tileinka sér þau og það greini hann frá dýrum. Umrætt erindi verður hægt að nálgast á vef Háskóla Íslands innan nokkurra daga.

deila á facebook