Erasmus Mundus meistaragráða í landupplýsingum og umhverfisfræðum - GEM

Erasmus Mundus meistaragráða í landupplýsingum og umhverfisfræðum - GEM

GEM, sem stendur fyrir Geo-Information Science and Earth Observation for Environmental Modelling and Management, er sameiginleg meistaragráða fimm háskóla í Evrópu sem nýlega var styrkt af Erasmus Mundus áætluninni. Námsleiðin var ein 29 umsókna sem hlutu styrk til næstu fimm ára en alls 181 umsókn bárust áætluninni að þessu sinni. Sameiginlegt hágæða nám á meistara- og doktorsstigi er grunnurinn í Erasmus Mundus áætluninni, sem ætlað er að bæta gæði háskólanáms í Evrópu og efla tengsl við lönd utan Evrópu.

Samstarfsháskólarnir í GEM-námsleiðinni eru auk Háskóla Íslands, Háskólinn í Lundi í Svíþjóð, Háskólinn í Varsjá í Póllandi, Háskólinn í Southampton í Englandi og Háskólinn í Twente í Hollandi sem jafnframt fer fyrir verkefninu. Umsjón með GEM hér heima hefur Land- og ferðamálfræðistofa.

Í náminu er lögð áhersla á nýtingu landupplýsingatækni í umhverfisfræðum og í skipulagi og stjórnun umhverfisauðlinda. Nemendur dvelja eitt misseri í hverju þátttökulandanna og fá þannig tækifæri á að kynnast mismunandi menningu og umhverfi í Evrópu. Samstarfssamningur er jafnframt við Háskólann í Sydney í Ástralíu sem gefur áhugasömum nemendum kost á að gera hluta rannsóknaverkefnisins þar.

Heimasíða GEM er www.gem-msc.org 
Frekari upplýsingar um námið veitir Rannveig Ólafsdóttir, dósent við Líf- og
umhverfisvísindadeild.


31.8.2010 13:05

deila á facebook
Hlaut Nýsköpunarverðlaun...

Vilhjálmur Steingrímsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið „Áhættureiknir fyrir hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá öldruðum“. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Hagfræðitilraunir á...

Nám í hinum ólíku greinum félagsvísindanna verður kynnt á Háskólatorgi á Háskóladaginn sem fram fer laugardaginn 18. febrúar milli kl. 12 og 16.

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands er stærsta fræðasvið skólans með hátt í fimm þúsund nemendur í sex deildum. Fulltrúar frá öllum deildum, þ.e...

Rannsaka áhrif bólusetninga

Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði bakteríutegundarinnar pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar.  Rannsóknin á að standa í þrjú ár og kostnaður er áætlaður  nálægt einni milljón evra,...

Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.