Skip to main content
25. maí 2017

Einn helsti dægurtónlistarfræðingur heims í HÍ

""

Simon Frith, prófessor og einn helsti dægurtónlistarfræðingur heims, mun fara yfir feril sinn sem spannar nú tæplega hálfa öld í erindi í Veröld - húsi Vigdísar föstudaginn 26. maí kl. 12. Hann mun snerta á sögu og þróun dægurtónlistarfræðanna, því brautryðjendastarfi sem hann hefur sinnt þar og helstu áskorunum sem þessi þverfaglega nálgun stendur frammi fyrir.  

Frith hefur ritað fjölda bóka og greina um dægurtónlist út frá félagsfræðilegri, sögulegri og heimspekilegri nálgun og hafa viðfangsefnin verið jafn mörg og þau eru ólík. Víðfeðm yfirreið hans hefur m.a. snert á eðli „lélegrar“ tónlistar, popptónlistar sem iðn- og neysluvöru og því gildi sem falið er í popptónlistinni - sé það að finna. Hann hefur ritstýrt fjölda ritraða sem taka á dægurtónlistarfræðum og vinnur nú að ritun tónleikasögu Bretlands ásamt rannsóknarteymi.  

Eftir fyrirlesturinn verður gestum boðið til móttöku þar sem hægt verður að ræða við Frith í návígi.  

Fyrirlestraröðin „Samtal við samfélagið“, samstarfsverkefni Félagsfræðingafélags Íslands og námsbrautar í félagsfræði við Háskóla Íslands, stendur að viðburðinum ásamt skrifstofu rektors.  

Aðgangur er ókeypis.

Um Simon Frith

Simon Frith er með B.A. próf í heimspeki frá Oxford og doktorsgráðu í félagsfræði frá Berkeley-háskóla. Á áttunda áratugnum og fram á þann níunda sinnti hann tónlistarblaðamennsku með fram akademískum störfum og skrifaði m.a. í Village Voice og Sunday Times. Frith kenndi í háskólum í Englandi og Skotlandi en árið 2006 var hann ráðinn til Edinborgarháskóla sem ‘Tovey’ prófessor.

Frith var stofnmeðlimur Alþjóðasamtaka dægurtónlistarfræðinga (IASPM) og einn af stofnendum akademíska tímaritsins Popular Music. Hann hefur þá gegnt stöðu dómnefndarformanns í hinum virtu Mercury-tónlistarverðlaunum frá stofnun þeirra árið 1992. Frith var sæmdur OBE-orðu Bretlandsdrottningar í ársbyrjun 2017 fyrir störf sín á vettvangi æðri mennta og dægurtónlistar. 

Simon Frith