Dr. Noam Chomsky flytur fyrirlestur hér á landi föstudaginn 9. september næstkomandi á vegum Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Í fyrirlestrinum mun Chomsky fjalla um stöðu heimsmálanna, lýðræði, vald og ofbeldi undir yfirskriftinni: ,,The two 9/11s: Their historical significance“. Þann 11. september verður áratugur liðinn frá árásunum á Tvíburaturnana í New York en Chomsky hefur talsvert ritað og rætt um orsakir og afleiðingar þeirra. Chomsky er öndvegisfyrirlesari Hugvísindasviðs á aldarafmælisári Háskóla Íslands.
Fyrirlesturinn er haldinn í stóra sal Háskólabíós föstudaginn 9. september kl. 15:00. Hann fer fram á ensku og er öllum opinn með húsrúm leyfir.
Noam Chomsky er bandarískur málvísindamaður, rithöfundur og virkur þátttakandi í stjórnmálaumræðu. Hann er prófessor emeritus í málvísindum við Massachusetts Institute of Technology (MIT). Í hádeginu 9. september mun Chomsky taka þátt í málstofu á þverfaglegu námskeiði Háskóla Íslands um fræði Chomskys: Mál, sál og samfélag. Markmið námskeiðsins, sem er í umsjón Höskuldar Þráinssonar prófessors, er að gefa yfirlit yfir kenningar og hugmyndir Chomskys og áhrif þeirra á rannsóknir og umræðu í mannlegum fræðum sem og almenna þjóðfélagsumræðu. Námskeiðið er opið almenningi meðan húsrúm leyfir og hefst föstudaginn 2. september kl. 11:40 í stofu 104 á Háskólatorgi. Málstofan 9. september lýtur að málvísindakenningum Chomskys og verður haldin í sal 2 í Háskólabíói.
Undir lok 6. áratugs síðastliðinnar aldar lagði Chomsky grunninn að þeirri stefnu í málvísindum sem hefur verið nefnd málkunnáttufræði á íslensku. Sú stefna olli straumhvörfum í málvísindum, en eitt meginatriði hennar er að öll tungumál séu sama eðlis, maðurinn hafi meðfæddan hæfileika til að tileinka sér þau og það greini hann frá dýrum. Allar götur síðan hefur Chomsky verið að þróa málvísindakenningu sína í fjölda greina og bóka. Hann er talinn einn fremsti málvísindamaður sem uppi hefur verið og er einn þeirra vísindamanna sem oftast er vitnað til í fræðiritum.
Chomsky er einnig heimskunnur sem samfélagsrýnir og hefur birt fjölda bóka og greina á því sviði.
