Dr. Kirby til Stjórnmálafræðideildar

Í síðustu viku var undirritaður samningur við Dr. Peadar Kirby, prófessor í alþjóðastjórnmálum og stefnumótun við Limerick-háskóla í Írlandi, um að hann starfi sem gistiprófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands næstu tvö ár. Dr. Kirby hefur rannsakað efnahagslegar, pólitískar og félagslegar afleiðingar efnahagshrunsins í heimalandi sínu og m.a. borið stöðu Írlands saman við Ísland og smáríki í Suður- og Mið-Ameríku.

Dr. Kirby er virtur fræðimaður á sviði alþjóðastjórnmála og stefnumótunar. Hann hefur m.a. skrifað fjölda greina og bóka um stöðu Írlands sem smáríkis í alþjóðakerfinu. Þá hefur hann unnið ítarlega greiningu á efnahagsstöðu Írlands og pólitískum og félagslegum afleiðingum efnahagsuppgangs í landinu frá því á miðjum 10. áratug síðustu aldar þar til hin alþjóðlega efnahagskreppa reið yfir landið árið 2008.

Stjórnmálafræðideild býður upp á nám á ensku í smáríkjafræðum og mun þekking dr. Kirbys nýtast vel í námskeiðum á því sviði.  Auk þess munu störf hans hér greiða fyrir samstarfi milli Stjórnmálafræðideildar HÍ og Limerick-háskóla, m.a. varðandi skiptinám og doktorsnám.

Koma dr. Kirbys hefur þegar vakið mikla athygli og hefur hann rætt við íslenska fjölmiðla um rannsóknir sínar.

Dr. Kirby í Silfri Egils á RÚV - 13. nóvember

Dr. Kirby í fréttum Stöðvar 2 - 12. nóvember

Dr. Kirby í Speglinum á Rás 1 og 2 - 10. nóvember

deila á facebook