Dr. Hildebert Ehrenfeld sækir félagsráðgjafardeild heim

Þann 18. október mun Dr. Hildebert Ehrenfeld, prófessor við University of Applied Sciences and Arts, Hildesheim, Þýskalandi flytja fyrirlestur um ástand vinnumarkaðsins og atvinnleysi í Þýskalandi. Fyrirlestur Hildebert er hluti af námskeiðinu Atvinnuleysi og afleiðingar þess sem er valnámskeið í BA námi í félagsráðgjöf í umsjón Halldórs S. Guðmundssonar, lektors í félagsráðgjöf. Því til viðbótar mun Ehrenfeld kynna The Faculty of Social Work and Health við University of Applied Sciences and Arts fyrir starfsmönnum félagsráðgjafardeildar.

Í sífellt minnkandi heimi er mikilvægt að félagsráðgjafar framtíðarinnar fái að kynnast ólíkum sjónarhornum ólíkra einstaklinga, jafnframt er mikilvægt fyrir starfsfólk félagsráðgjafardeildar að þekkja fyrirkomulag náms í félagsráðgjöf við aðra háskóla.

deila á facebook