Doktorsnemi við HÍ sigraði í Reykjavíkurmaraþoni
Björn Margeirsson, doktorsnemi í vélaverkfræði í Iðnaðar- vélaverkfræði og tölvunarfræðideild kom fyrstur í mark í heilmaraþoni Reykjavíkurmaraþonsins á dögunum.
Björn hljóp á 2 tímum, 33 mínútum og 57 sekúndum og er þar með Íslandsmeistari karla í greininni. Sigur Björns þykir merkilegur vegna þess að hann er fyrsti Íslendingurinn til að vinna í hlaupinu frá því Sigurður Pétur Sigmundsson vann í fyrsta hlaupinu árið 1984.
Rannsókn Björns við HÍ gengur út á ferlagreiningu og varmaflutningslíkanagerð svo að fátt eitt sé nefnt.
„Íslenskir fiskframleiðendur vilja sífellt bæta hitastýringu í vinnslu og flutningi sjávarafurða. Rannsóknir hafa leitt í ljós mikilvægi hitastýringar, frá veiðum allt að diski neytandans," segir Björn.
Hann nefnir mikilvægi þess að forkæla fiskbitana áður en þeim er pakkað. Einnig eru pakkningar í stöðugri þróun en þær eru gríðarlega mikilvægar til að verja ferskfisk fyrir hitaálagi í flutningi. Samstarfsaðilar í þessu verkefni eru úr öllum stigum þróunar kælikeðjunnar en þeir eru Matís, Promens Tempra, Brim, Samherji, Festi og Eimskip.
Björn segir að stefnt sé að því að verklag og búnaður tengdur vinnslu og flutningi batni frá upphafi verkefnisins. Hann segist líka vona að rannsóknin skili aukinni þekkingu á tölvuvæddri varma- og straumfræði. Auka þyrfti hagnýtingu þess fræðasviðs innan sjávarútvegs og matvælaiðnaðarins. Framleiðandi endurbættra pakkninga nýtur góðs af rannsókninni þar sem hann öðlast markaðsforskot á samkeppnisaðila sína og fiskframleiðendur með auknum gæðum, geymsluþoli og verðmætari vöru. Það verða þó ekki einungis þátttakendur verkefnisins og aðrir ferskfiskútflytjendur sem njóta góðs af verkefninu, heldur einnig almenningur með öruggari og betri fiskafurðum.
Leiðbeinandi Björn er Halldór Pálsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.
Nánar um afrek Björns á íþróttasviðinu: http://www.marathon.is/reykjavikurmaraton
23.8.2010 21:39




