Skip to main content
1. desember 2016

Doktorar heiðraðir á fullveldisdaginn í Háskóla Íslands

""

Sextíu og sex doktorar sem brautskráðst hafa frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2015 til 1. desember 2016 tóku í dag við gullmerki skólans á árlegri Hátíð brautskráðra doktora. Hún fór nú fram í sjötta sinn í Hátíðasal skólans og viðstaddir athöfnina voru forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og IIllugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.

Með hátíðinni vill Háskóli Íslands fagna því öfluga starfi sem doktorsnemar vinna innan skólans og þeim aukna krafti sem færst hefur í rannsóknatengt nám í háskólanum á síðustu árum. Í samstarfi við leiðbeinendur sína leggja doktorsnemar sitt af mörkum til þekkingarleitar alþjóðasamfélagsins og taka virkan þátt í að efla háskólann sem alþjóðlega rannsóknastofnun. Þess má sjá glöggt merki í góðum árangri í birtingu vísindagreina í alþjóðlegum tímaritum og með stöðu Háskóla Íslands á matslista Times Higher Education World Rankings yfir bestu háskóla heims.

Efling doktorsnáms hefur verið hluti af stefnumörkun Háskóla Íslands í rúman áratug og í nýrri stefnu fyrir árin 2016-2021, sem samþykkt var fyrr á þessu ári, er að finna markmið og leiðir til að styrkja námið enn frekar. Líkt og í stefnu fyrir árin 2011-2016 er áfram markmiðið að um 70 manns brautskráist úr doktorsnámi á ári hverju frá skólanum. Svo skemmtilega vill til að þegar árið 2016 hefur runnið sitt skeið munu 70 nemar hafa varið doktorsritgerð sína við skólann á árinu. Það er næstmesti fjöldi sem brautskráðst hefur með þennan æðsta lærdómstitil frá Háskóla Íslands á einu ári. Enn fremur telur sá hópur sem lokið hefur doktorsprófi frá skólanum frá upphafi nú um 600 manns.

Doktorarnir 66 sem tóku við gullmerki háskólans í dag koma af öllum fimm fræðasviðum skólans. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa varið ritgerðir sínar við skólann frá 1. desember 2015 til 1. desember 2016 og í hópnum eru 24 karlar og 42 konur. Níu hafa lokið sameiginlegu doktorsprófi frá Háskóla Íslands og erlendum háskóla. Rúmur þriðjungur hinna nýju doktora er með erlent ríkisfang og kemur víða að úr heiminum, annars staðar úr Evrópu, frá Norður-Ameríku, Asíu og Afríku.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók í fyrsta sinn þátt í athöfninni og flutti ávarp og þá var Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra einnig viðstaddur.  Enn fremur ávarpaði Sunna Gestsdóttir, doktor í menntavísindum, samkomuna fyrir hönd nýbrautskráðra doktora.

Háskóli Íslands færir þeim stóra og glæsilega hópi sem tók við gullmerkjum skólans í dag innilegar hamingjuóskir með áfangann og óskar doktorunum góðs gengis á fjölbreyttum starfsvettvangi í framtíðinni.

Hátíð brautskráðra doktora - 1. desember 2016 (.pdf)

""
""