Dagskrá RIKK á vormisseri
RIKK, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands, hefur birt dagskrá stofunnar á vormisseri 2012. Efnt verður til fyrirlestra í stofu 132 í Öskju á fimmtudögum kl. 12:00-13:00 undir yfirskriftinni Mannkynssögur. (Dagskrá á pdf).
19. janúar.
Helga Gottfreðsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild HÍ: „Tvennt er kyn að manni hverjum: Reynsla verðandi feðra á meðgöngu.“
2. febrúar.
Guðrún Ingólfsdóttir, doktor í íslenskum bókmenntum: „Bóklausar og blindar? Handrit í höndum kvenna.“
16. febrúar.
Bryndís Björgvinsdóttir, M.A. í þjóðfræði: „Af hverju eru konur með fætur? Eiginkonur, ljóskur, hórur og fleiri kvenpersónur í nýlegum íslenskum bröndurum.“
1. mars.
Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Hugvísindasvið HÍ: „Yfirlitsrit um íslenskar miðaldabókmenntir frá kynjafræðilegu sjónarmiði.“
15. mars.
Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri: „Hvers vegna er úthlutað meira rannsóknarfé til karla en kvenna á Íslandi?“
29. mars.
Eyja Margrét Brynjarsdóttir, nýdoktor við Heimspekistofnun HÍ: „Er heimspekin kvenfjandsamleg?“
12. apríl.
Bergljót S. Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum við Íslensku- og menningardeild HÍ: „Heili konunnar, hvað? Rabb um kyn og hugræn fræði.“
26. apríl.
Helga Þórey Björnsdóttir, doktor í mannfræði: „Hraustir menn. Sköpun kyngervis og sjálfsmyndar í Íslensku friðargæslunni.“
—————————
10. febrúar
Málþing: „Að skrifa konur inn í söguna“
Í samstarfi við Jafnréttisstofu
Kl. 14.00 – 17.00 í Öskju, stofu 132
17.1.2012 11:32




