Chomsky flytur tvö erindi í HÍ í dag


Bandaríski málvísindamaðurinn og samfélagsrýnirinn dr. Noam Chomsky, öndvegisfyrirlesari Hugvísindasviðs, flytur í dag tvo fyrirlestra á vegum Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Chomsky kom til landsins í gær.

Hann átti í morgun fund með Jóni Gnarr borgarstjóra og eiginkonu hans en á hádegi flytur hann fyrirlestur á námskeiði um áhrif hugmynda hans á rannsóknir og umræðu í mannlegum fræðum. Námskeiðið er kennt á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Fyrirlestur dr. Chomskys fjallar um málfræði og nefnist „The ´Generative Enterprise´: Its origins, goals, prospects“ og verður sal 2 í Háskólabíói.

Klukkan 15 í dag er svo komið að seinna erindi dr. Chomskys. Það verður flutt í stóra sal Háskólabíós. Í því erindi mun dr. Chomsky fjalla um stöðu heimsmálanna, lýðræði, vald og ofbeldi undir yfirskriftinni ,,The two 9/11s: Their historical significance“. Þann 11. september verður áratugur liðinn frá árásunum á Tvíburaturnana í New York en Chomsky hefur talsvert ritað og rætt um orsakir og afleiðingar þeirra. Húsið verður opnað kl. 14.

Dr. Noam Chomsky er bandarískur málvísindamaður, rithöfundur og virkur þátttakandi í stjórnmálaumræðu. Hann er prófessor emeritus í málvísindum við Massachusetts Institute of Technology (MIT). Undir lok 6. áratugs síðastliðinnar aldar lagði dr. Chomsky grunninn að þeirri stefnu í málvísindum sem hefur verið nefnd málkunnáttufræði á íslensku. Sú stefna olli straumhvörfum í málvísindum, en eitt meginatriði hennar er að öll tungumál séu sama eðlis, maðurinn hafi meðfæddan hæfileika til að tileinka sér þau og það greini hann frá dýrum. Allar götur síðan hefur dr. Chomsky verið að þróa málvísindakenningu sína í fjölda greina og bóka. Hann er talinn einn fremsti málvísindamaður sem uppi hefur verið og er einn þeirra vísindamanna sem oftast er vitnað til í fræðiritum.

Dr. Chomsky er einnig heimskunnur sem samfélagsrýnir og hefur birt fjölda bóka og greina á því sviði.

deila á facebook