Brautskráning úr NordMaG-námi

Háskóli Íslands hefur brautskráð þrjá nemendur úr NordMaG, samnorrænu MA-námi í öldrunarfræðum, og var þeim veitt sameiginleg viðurkenning samstarfsskólanna sl. mánudag við hátíðlega athöfn.

Brautskráðir nemendur eru Gunnjóna Una Guðmundsdóttir, Kristbjörg Hjaltadóttir og Steinunn Arnars Ólafsdóttir.

NordMaG er þverfræðilegt meistaranám í öldrunarfræðum sem er skipulagt sameiginlega af Háskóla Íslands, Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og Háskólanum í Jyväskylä í Finnlandi. Í Háskóla Íslands er námið vistað hjá Félagsráðgjafardeild, í háskólanum í Lundi innan læknisfræðideildar og í háskólanum í Jyväskylä innan íþrótta- og heilbrigðisvísindadeildar

Nánari upplýsingar um námið

deila á facebook