24. febrúar 2015
Brautskráning Háskóla Íslands laugardaginn 22. febrúar
Brautskráning Háskóla Íslands fór fram laugardaginn 22. febrúar síðastliðinn við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Alls brautskráðust 43 kandídatar frá Félags- og mannvísindadeild, þar af 18 úr grunnnámi, átta með viðbótardiplóma og 16 úr meistaranámi.
Einn kandídat brautskráðist með ágætiseinkunn frá Félags- og mannvísindadeild. Það var Eyrún Sigurðardóttir sem brautskráðist með M.LIS. í bókasafns- og upplýsingafræði með einkunnina 9,01. Lokaverkefnið hennar ber heitið Bókasafn Menntavísindasviðs Háskóla Íslands: Þjónustukönnun. Leiðbeinandi hennar var Ágústa Pálsdóttir.
Kennarar og starfsfólk Félags- og mannvísindadeildar óskar öllum kandídötum til hamingju með áfangann.