Brautskráð úr fjölskyldumeðferðarnámi

Þann 10. júní sl. útskrifuðust 24 nemendur úr tveggja ára námi í fjölskyldumeðferð frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ). Einn nemandi, Vilborg Guðnadóttir, hlaut viðurkenningu fyrir afburða námsframmistöðu, en þess má geta að hún útskrifaðist úr námi í handleiðslufræðum, Faghandleiðsla og handleiðslutækni, í EHÍ í júní árið 2000.

Stjórnendur fjölskyldumeðferðarnámsins eru Helga Þórðardóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur sem er kennslustjóri námsins, Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og fjölskyldufræðingur, ásamt Kristínu Birnu Jónasdóttur, fulltrúa sem hafði umsjón af hálfu EHÍ. Hópurinn er þverfaglegur og á meðal annars rætur í félagsráðgjöf, hjúkrunarfræði og sálfræði. Fjórir sérfræðingar á sviði fjölskylduvinnu og handleiðslu leiddu reglulega handleiðsluhópa, þau Anna Sigríður Pálsdóttir prestur, Baldvin Steindórsson sálfræðingur, Bjarney Kristjánsdóttir félagsráðgjafi og Kolbrún Ragnarsdóttir iðjuþjálfi  

Þetta er í fyrsta sinn sem nám í fjölskyldumeðferð er skipulagt og kennt í samvinnu við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands með möguleika á framhaldi til meistaraprófs. Hefur nú um helmingur hópsins innritast í Félagsráðgjafardeild til að ljúka meistaranámi í fjölskyldumeðferð.

Fjölskyldumeðferð hefur áður verið kennd við EHÍ en það var einnig tveggja ára nám, fyrst kennt 1991-1993 og aftur 1995-1997. Það nám var að innihaldi og uppbyggingu áþekkt því sem nú var að ljúka en það var hins vegar skipulagt í samvinnu við meðferðarþjónustuna Tengsl og stjórnendur og aðalkennarar voru félagsráðgjafarnir Nanna K. Sigurðardóttir og Sigrún Júlíusdóttir. Þeir sem útskrifuðust þá áttu frumkvæði að stofnun Félags fjölskyldufræðinga. Það er blómlegt þverfaglegt félag sem stutt hefur við námið m.a. með samstarfi um kennslu og erlenda gestafyrirlesara.

Ánægjulegt er að geta þess að áætlað er að kenna námið áfram í haust og hafa nú á þriðja tug umsókna borist.

Frekari upplýsingar um námsleiðina er að finna á vef Endurmenntunar Háskóla Íslands

deila á facebook