Skip to main content
27. október 2016

Bók um bréf Jóns Thoroddsen

""

Út er komin bókin Bréf Jóns Thoroddsen í ritstjórn Más Jónssonar, prófessors í sagnfræði. Sögufélagið gefur út.

Jón Thoroddsen (1818-1868) er þekktur fyrir skáldsögur sínar Pilt og stúlku frá 1850 og Mann og konu, sem kom út að honum látnum, auk þess sem mörg ljóða hans lifa góðu lífi í söng og lestri. Hann var jafnframt lengi sýslumaður í Barðastrandarsýslu og Borgarfirði.

Í bókinni eru einkabréf til Jóns og frá honum ásamt úrvali embættisbréfa hans. Meðal þeirra sem hann skrifaðist á við voru Brynjólfur Pétursson, Gísli Brynjúlfsson, Jón Árnason bókavörður og þjóðsagnasafnari, Jón Pétursson yfirdómari og Jón forseti. Enn merkari eru þó bréf Jóns til unnustu sinnar, Ólafar Thorlacius, sem síðar giftist öðrum manni, og dóttur þeirra Elínar. Í bréfum Jóns gætir ávallt persónulegra tilþrifa sem sýna skapgerð hans og kímnigáfu. Bókinni er ætlað að bregða birtu á manninn á bak við skáldskapinn, einstaklinginn og embættismanninn.

Hér má lesa viðtal sem DV tók við Má um bókina.

Bókarkápa og Már Jónsson