Benedikt Hjartarson meðal ritstjóra Regarding the Popular

Út er komið ritið Regarding the Popular. Modernism, the Avant-Garde and High and Low Culture, sem gefið er út af hinu virta forlagi De Gruyter. Benedikt Hjartarson, aðjunkt í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands, er einn af sex ritstjórum ritsins. Aðrir ritstjórar eru Sascha Bru, Laurence Nuijs, Peter Nicholls, Tania Ørum og Hubert van den Berg.

Um er að ræða annað bindið sem gefið er út í ritröð samtakanna EAM (European Network for Avant-garde and Modernism Studies). Ritið geymir fjölda greina þar sem fjallað er um margbrotið samband framúrstefnu og módernisma í bókmenntum og listum við hversdagslíf og alþýðumenningu. Nánari upplýsingar má nálgast á vef forlagsins, De Gruyter.  

Benedikt Hjartarson hefur unnið að rannsóknum á evrópskri framúrstefnu um nokkurra ára skeið. Hann hefur setið í stjórn samtakanna EAM frá árinu 2007 og átti sæti í stjórn Norræns tengslanets í rannsóknum á framúrstefnu (Nordic Network for Avant-garde Studies) frá 2003 til 2009. Hann hefur á síðustu árum birt fjölda greina um evrópska framúrstefnu, sem hafa verið gefnar út á íslensku, þýsku, dönsku, ensku og sænsku.

Regarding the Popular. Modernism, the Avant-Garde and High and Low Culture á vef Amazon.

deila á facebook