Balaton ráðstefnan 13-14 september

Balton hópurinn
Balaton hópurinn

Alternatives to Growth: 
Challenges, Opportunities,  and Strategies

13-14 September 2010
National Museum of Iceland, Reykjavik

Þann 13. Og 14. september hittast alþjóðlegir sérfræðingar í fjármálum og sjálfbærni á Íslandi – þar sem þeir velta fyrir sér spurningunni – eru til aðrar leiðir en að mæla velgengni þjóða en með hagvexti og ef já hverjar eru þá áskorarnirnar, tækifærin og aðferðirnar?  Ráðstefna er unnin innan ramma niðurstaðna skýrslu sem Prófessor Tim Jackson skrifaði árið 2009 fyrir Sjálbærniframkvæmdastjórn Bretlands (UK Sustainability Commission) undir heitinu Velgengi án Hagvaxtar: Umbreytni í Sjálfbært Hagkerfi (Prosperity Without Growth: Transition to a Sustainable Economy).  Þar setur Jackson fram 12 skrefa líkan fyrir velgengi þjóða innan ramma vistkerfa jarðarinnar.  Á mánugagsmornuninn verður spurningin hér að ofan reyfuð og síðan verður umræða um hagvöxt og engan hagvöxt.  Eftir hádegi verða sett framlíkön og sviðsmyndir fyrir hagkerfi án vaxtar og alheimshagkerfið rætt í ljósi sjálfbærra grenndarsamfélaga.  Á þriðjudagsmorgum verða tengsl sjórnmála og hagfræði rædd og sviðsmydnir fyrir nýtt alheimshagkefir án vaxtar sett fram.

Ráðstefnan er skipulögð af svokölluðum Balatonhóp ( http://www.balatongroup.org/ ) og forseta Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Kristínu Völu Ragnarsdóttur, en hún er meðlimur í Balatonhópnum.  Þessi hópur hefur hist árlega síðan 1982 til að ræða efni sem tengjast sjálfbærni.  Hópurinn var stofnaður af Donellu Meadows og Dennis Meadows sem skrifuðu Tagmörk hagvaxtar (Limits to Growth) fyrir Rómarhópinn (Club of Rome) 1972.  Þátttakendur á ráðstefnunni eru m.a. frá stofnunum sameinuðu þjóðanna, fyrrverandi efnahagsráðgjafar forseta Bandaríkjanna, Umboðamaður komandi kynslóða í Ungverjalandi, prófessorar og sérfræðingar frá ýmsum frjálsum félagasamtökum.

Allir eru velkomnir á ráðstefnuna á meðan húsrúm leyfir.  

Ráðstefnugjald er 7500, 3000 fyrir nemendur, eldri borgara og atvinnulausa) og er kaffi og hádegismatur innifalið í gjaldinu.

Skráning er möguleg með því að senda tölvusóst á he@hi.is

Nánari upplýsingar: vefir.hi.is/balaton


8.9.2010 22:26


deila á facebook
Kynna samstarf á...

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.

Tveir harðir sigruðu í...

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...

Tilnefnd til...

Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.

Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...

Hönnunarkeppni verkfræðinema...

Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...