Augnrannsóknir vekja athygli

Fjallað er ítarlega um rannsóknir vísindamanna við Háskóla Íslands á súrefnismælingum í augnbotnum í EUROTIMES, fréttablaði augnlækna í Evrópu, sem kom út í síðasta mánuði. Alþjóðleg vinnustofa sérfræðinga á þessu sviði stendur yfir á Íslandi um helgina.

Í nýjasta hefti áðurnefnds fréttablaðs, sem hefur mikla útbreiðslu meðal augnlækna í Evrópu, er viðtal við Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum við Læknadeild Háskóla Íslands, m.a. um rannsóknir við Háskóla Íslands á sviði súrefnismælinga í augum. Þá er í leiðara blaðsins fjallað um það frumkvöðlastarf sem Einar og samstarfsfólk hans hefur unnið á sviðinu. Enn fremur er forsíðumynd blaðsins fengin frá rannsóknum hér á landi.

Einar Stefánsson hefur lengi unnið að rannsóknum ýmiss konar augnsjúkdómum. Hann er mjög kunnur á alþjóðavettvangi fyrir störf sín og hefur fengið fjölmargar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar í augnlæknisfræði.

Einar þróaði í samstarfi við Jón Atla Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu og prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild, og fleira fólk súrefnismæli fyrir augnbotna sem getur tryggt meðferð við augnsjúkdómum fyrr en áður var kleift. Tæknin nýtist væntanlega við meðhöndlun á sykursýki, bláæðastíflum í sjónhimnu og gláku og metur einnig áhrif lyfja- og leysimeðferðar. Sprotafyrirtækið Oxymap var stofnað til að þróa áfram lausnir sem tengjast þessum rannsóknum.

Við þetta má bæta að helstu sérfræðingar heims á sviði súrefnismælinga í augum, meðal annars frá Bandaríkjunum og nokkrum Evrópulöndum, eru hingað komnir til þess að taka þátt í vinnustofu um viðfangsefnið sem nefnist „Retinal Oximetry Workshop“. Hún fer fram dagana 19.-21. janúar á Landspítala. Þar verða nýjustu rannsóknir og tækniframfarir á sviðinu kynntar ásamt því sem horft verður til framtíðar í faginu.

deila á facebook