Art in Translation: Alþjóðleg ráðstefna um tungumál og listir

Art in Translation er þriggja daga ráðstefna sem Háskóli Íslands, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Norræna húsið efna til 24.-26. maí 2012. Á ráðstefnunni verða hátíðarfyrirlestrar, tónleikar, myndlistarsýning og fleiri viðburðir meðfram fræðilegum fyrirlestrum og listrænum gjörningum. Markmiðið er að búa til þverfaglegan vettvang handa fræðimönnum, listamönnum og almenningi til að skoða tengingar milli tungumáls og ýmissa listforma.

Með ráðstefnunni 2012 er ætlunin að leita nýrra strauma í ritlist, einkum þegar hún tengist öðrum listforum eða sameinar þau. Leitað er eftir framlagi frá fræðimönnum, sérfræðingum, listamönnum og stúdentum í fjölmörgum greinum (ritlist, myndlist, tónlist, kvikmyndum, listfræði, málvísindum, þýðingum, mannfræði, menningarfræði, kennslufræði og öðrum skyldum greinum). Á milli 40 og 50 umsækjendur verða valdir til þátttöku á grundvelli innsendra tillagna.

Sjá nánar um áherslur ráðstefnunnar að þessu sinni á vefsíðunni https://artintranslation.hi.is/. Tillögur sendist á netfangið artintranslation@hi.is.

deila á facebook