Skip to main content
18. ágúst 2016

Ársfundur Háskóla Íslands haldinn í Hátíðasal

""

Ársfundur Háskóla Íslands verður haldinn í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskólans fimmtudaginn 25. ágúst 2016 kl. 14.00-15.15. Yfirskrift fundarins er „Öflugur háskóli – farsælt samfélag“ og þar verður farið yfir stöðu skólans, stefnu hans til næstu ára og fjármál. Á fundinum verður ársskýrsla og lykiltölur skólans enn fremur kynntar.

Fundurinn er haldinn í samræmi við lög um háskóla en þau kveða á um að öllum háskólum sem njóta fjárframlaga úr ríkissjóði beri að halda opinn ársfund þar sem fjárhagur háskólans og meginatriði starfsáætlunar eru kynnt.

Dagskrá ársfundar Háskólans er sem hér segir:

Kl. 14.00 Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra – Ávarp

Kl. 14.10 Jón Atli Benediktsson rektor – Staða og framtíð Háskóla Íslands

Kl. 14.30 Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar – HÍ 21, ný stefna Háskóla Íslands 2016-2021

Kl. 14.45 Guðmundur R. Jónsson framkvæmdastjóri og Jenný Bára Jensdóttir fjármálastjóri – Fjárhagur Háskóla Íslands

Kl. 15.00 Jón Örn Guðbjartsson sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs – „Fjársjóður framtíðar“ – brot úr nýrri sjónvarpsþáttaröð um vísindin í Háskóla Íslands

Fundarstjóri: Ebba Þóra Hvannberg prófessor

Að loknum ársfundi verður boðið upp á kaffiveitingar. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.

Háskóli Íslands er í fararbroddi íslenskra háskóla og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísinda- og fræðasamfélagi. Skólinn hefur verið meðal 300 bestu háskóla í heiminum frá árinu 2011 skv. matslista Times Higher Education World University Rankings og er nú í 222. sæti.

Aðalbygging Háskóla Íslands
Aðalbygging Háskóla Íslands