Alþjóðlegri ráðstefnu stjórnmálafræðinga við Háskóla Íslands lauk nú á laugardag og heppnaðist hún í alla staði vel. Ásta Möller, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála, segir ráðstefnugesti afar ánægða með móttökur, skipulag og aðstöðu í háskólanum.
Ráðstefna European Consortium for Political Research er haldin annað hvert ár en ráðstefnan á Íslandi er sú fjölmennasta til þessa. Ásta sagði að „með ráðstefnunni skapaðist skemmtilegt og alþjóðlegt andrúmsloft við Háskólann og þar sem veðrið lék við ráðstefnugesti mátti sjá þá bæði utan- og innandyra um allt háskólasvæðið. Stjórnmálafræðinemar í rauðum bolum settu einnig svip sinn á ráðstefnuna og gerðu góða ráðstefnu enn betri, en þeir áttu sinn þátt í aðstoða og leiðbeina ráðstefnugestum.“ Allir undirbúningsaðilar og fulltrúar frá ECPR að utan eru jafnframt afar ánægðir með framkvæmd ráðstefnunnar.
Í undirbúninganefnd ráðstefnunnar fyrir hönd Háskóla Íslands eru þau Ólafur Þ. Harðarson, forseti Félagsvísindasviðs HÍ, Ásta Möller, forstöðumaður, Margrét S. Björnsdóttir aðjúnkt og Jökul Torfason, stjórnmálafræðinemi og formaður Politica, félags stjórnmálafræðinema. Auk þeirra koma að undirbúningi og framkvæmd mikill fjöldi starfsmanna HÍ, Gestamóttökunnar Your Host, Múlakaffis og Félagsstofnunar.
Myndir frá ráðstefnu ECPR í Háskóla Íslands.
Umfjöllun um ráðstefnuna í íslenskum fjölmiðlum: Prófessor Baldur Þórhallsson og Prófessor Amy Verdun um Smáríki á RÚV, Fréttastofa RÚV ræðir við Prófessor Erik Jones við Johns Hopkins, Fréttastofa stöðvar tvö fjallar um ráðstefnuna og spjallar við Ástu Möller, skipuleggjanda, Mbl.is fjallar um ráðstefnuna
