Árangur markaðsdrifinna fyrirtækja

Markaðsfræði í fortíð, nútíð og framtíð er yfirskrift málstofu sem Viðskiptafræðideild efnir til á morgun, fimmtudaginn 6. október kl. 12. Þetta er fyrsta málstofan af þremur í málstofuröð deildarinnar, en þær eru haldnir í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands.

Hugmynda- og aðferðafræði markaðsfræðinnar getur leikið lykilhlutverk í frammistöðu fyrirtækja og þar með hagsæld þjóða. Rannsóknir hafa sýnt að því markaðsdrifnari sem fyrirtæki eru, og því meiri markaðslegri færni sem þau búa yfir, því betri árangri ná þau. Á málstofunni verður markaðsdrifnum fyrirtækjum og markaðslegri færni gerð ítarleg skil auk þess sem fjallað verður um hlut samfélagsmiðla í markaðsstarfi fyrirtækja og tækifærin sem í þeim felast.

Einn af fyrirlesurunum á málstofunni er dr. Þórhallur Guðlaugsson, dósent við Viðskiptafræðideild. Þórhallur mun gera grein fyrir þeim forsendum sem þurfa að vera til staðar þegar byggja á upp markaðsdrifið fyrirtæki. „Þeim má í grundvallaratriðum skipta upp í tvo hluta. Annars vegar hegðun og færni en hins vegar þekking og viðhorf. Farið verður yfir þróun þessara áherslna og athyglinni beint að hinum hugmyndalega grunni sem markaðsdrifið fyrirtæki byggir starf sitt á. Í fyrirlestrinum fer ég nánar yfir þessar grunnforesendur, þ.e. hvernig markaðsáherslan hefur þróast í gegnum tíðina og hvaða hegðun og færni það er sem er drifin áfram af þeirri áherslu,“ segir Þórhallur og bætir við að oft sé mikill hugtakaruglingur í umræðunni og fólk geri oft ekki greinarmun á því hvort verið er að lýsa hugmyndafræðilegum grunni eða hegðun.”

„Ég legg áherslu á að draga fram hvað felst í því þegar talað er um að fyrirtæki sé markaðsdrifið, en við þurfum að leggja áherslu á forsendur fyrir því að fyrirtæki geti verið markaðsdrifið og hvað þekking og færni þurfa að vera til staðar,“ segir Þórhallur. „Mjög gjarnan er misskilningur uppi um hugtök og þau álitin merkja eitthvað allt annað en þau í raun gera samkvæmt markaðsfræðunum.“

Notkun samfélagsmiðla og markaðsleg færni fyrirtækja
Aðrir fyrirlesarar á málþinginu eru Friðrik Eysteinsson, aðjúnkt við Viðskiptafræðideild, og Frosti Jónsson, markaðs- og birtingaráðgjafi hjá Birtingahúsinu.

Friðrik Eysteinsson fjallar um markaðslega færni fyrirtækja.  Hann mun meðal annars velta upp eftirfarandi spurningum: Hverjar eru hinar mismunandi tegundir markaðslegrar færni og hver er þáttur hverrar þeirra fyrir sig í frammistöðu fyrirtækja? Og hver er þáttur markaðslegrar færni í samanburði við aðra færni fyrirtækja svo sem færni í rannsóknum og þróun og rekstri þegar árangur fyrirtækja er annars vegar?

Frosti Jónsson, markaðs- og birtingaráðgjafi hjá Birtingahúsinu, fjallar um notkun samfélagsmiðla í markaðsstarfi fyrirtækja. Vitað er að stór hluti þeirra sem hyggja á kaup á vörum og þjónustu byrja leitina á Netinu. Rannsóknir sýna að allt að 70% fólks fer á netið á meðan það horfir á sjónvarpið og þriðjungur leitar að auglýstri vöru sem það sá í auglýsingahléi. Fara fyrirtæki sem ekki nota samfélagsmiðla í sínu markaðsstarfi á mis við tækifæri?

deila á facebook