Alþjóðlegt málþing um velferðar- og orlofsmál er haldið á vegum Stjórnmálafræðideildar HÍ dagana 15. - 16. september. Málþingið er haldið af alþjóðlega netverkinu "International Network on Leave Policy and Releated Research". Að netverkinu eiga aðild 25 lönd frá öllum heimshlutum. Þema málþingsins er Norðurlöndin en sérstök áhersla er lögð á Ísland og hvernig velferðarkerfinu reiðir í kreppunni og niðurskurðinum eftir hrun.
Ísland er fyrst Norðurlandanna til að standa að og vera gestgjafi þessa málþings, sem starfrækt hefur verið síðan 2004. Meðlimir netverksins eru 48 talsins og margir hverjir eru meðal fremstu fræðimanna á þessu sviði. Jafnframt eru góð tengsl við lykilaðila í mörgum alþjóðastofnunum, svo sem ESB og OECD og netverkið er orðinn marktækur samræðuaðili við þessa aðila og áhrifa þess á umræðu og stefnumörkun á þeim vettvangi er þegar farið að gæta.
Íslenskir meðlimir netverksins eru Prófessor Þorgerður Einarsdóttir, deildarforseti Stjórnmálafræðideildar og Dr. Gyða M. Pétursdóttir, aðjúnkt í Kynjafræði.
