Dr. Urður Njarðvík, lektor við Sálfræðideild HÍ, kryfur umræðuna um athyglisbrest með ofvirkni hjá íslenskum börnum í hádegisfyrirlestri í Lögbergi, mánudaginn 31. janúar Fyrirlesturinn er sá síðasti í röð sex fyrirlestra sem Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir í janúar, í tilefni af aldarafmæli skólans.
„Athyglisbrestur með ofvirkni, eða ADHD, er umdeild röskun sem kemur oft upp í fjölmiðlum og daglegri umræðu. Ég mun fjalla um eðli kvillans og greiningarferlið og reyni jafnframt að varpa ljósi á algengar mýtur um hegðunarkvilla barna,“ segir Urður sem er klínískur barnasálfræðingur og hefur stundað rannsóknir á ADHD og árangri meðferða við hegðunarvanda barna auk þess að hafa starfað meðal annars á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og haft umsjón með sálfræðiþjónustu á Barnaspítala Hringsins.
Agaleysi, frekja og sykurneysla
Athyglisbrestur með ofvirkni, eða ADHD, er röskun á taugaþroska sem lýsir sér í einbeitingarerfiðleikum, ofvirkni og hvatvísi. „Þó ADHD sé vel rannsakaður kvilli er hann enn nokkuð umdeildur meðal almennings og neikvæð umræða um hann er reglulega í fjölmiðlum“, segir Urður og bendir á að ADHD hrjái um það bil 5 % barna á skólaaldri.
„Ýmsar algengar mýtur um ADHD og hegðunarvanda barna almennt verða einnig ræddar, s.s. að ADHD finnist eingöngu á Vesturlöndum, að kvillinn sé afleiðing lélegra uppeldisaðferða nútímaforeldra, að hegðunarvandi barna stafi almennt af agaleysi og frekju barnanna sjálfra og að sykurneysla valdi ofvirknieinkennum. Því fer auðvitað fjarri og í erindinu leitast ég við að útskýra eðli vandans, í hverju ADHD felst og hvaða áskoranir börn með kvillann þurfa að takast á við í daglegu lífi.“
ADHD er ein algengasta hegðunarröskun barna og unglinga og veldur þeim, fjölskyldum þeirra og nánasta umhverfi verulegum óþægindum og truflunum.„Greiningarferlið er bæði flókið og tímafrekt og yfirleitt koma fleiri en einn fagaðili að þeirri vinnu. Safna þarf upplýsingum frá bæði foreldrum og kennurum auk þess sem meta þarf vitsmunaþroska barnsins og vinnsluminni svo eitthvað sé nefnt og mun ég í fyrirlestrinum fara nánar út í þær aðferðir sem fagfólk beitir,“ segir Urður. Fyrirlesturinn er öllum opinn og gefst fólki færi á að koma með fyrirspurnir að erindi loknu.
Fyrirlestur Urðar verður í stofu 101 í húsnæði Lagadeildar, Lögbergi, mánudaginn 31. janúar milli kl. 12:10-12:50.
ADHD - er þetta ekki bara óþekkt?
