18% fjölgun umsókna í Háskóla Íslands

Adalbygging Haskola Islands
Aðalbygging Háskóla Íslands

18% fjölgun umsókna í Háskóla Íslands

Umsóknum um meistaranám fjölgar um 32% , 5.351 sækja um grunnnám, sem er 12% aukning á milli ára,
og mikil fjölgun er í heilbrigðisvísindum, verkfræði og náttúruvísindum

Á sjötta þúsund nýnemar sækja um grunnnám við Háskóla Íslands fyrir næsta misseri en umsóknum um grunnnám  fjölgar um 12 % milli áranna 2009 og 2010.  Umsóknir um meistaranám eru 2.700 sem er met og er aukningin 32%.  Þá fjölgaði umsóknum um doktorsnám um 39% milli ára.  Miðað við þær tölur sem nú liggja fyrir er heildarfjöldi umsækjenda um grunn- og framhaldsnám á níunda þúsund.  Heildarfjölgun umsókna þegar allt er talið er því rösklega 18%. 

Umsækjendur um grunnnám dreifast nokkuð jafnt yfir öll fimm fræðasvið Háskólans.  Mesta fjölgun umsókna er þó á Heilbrigðisvísindasviði en þar eru umsóknir 31% fleiri en í fyrra.  Mikil fjölgun var í hópi þeirra sem þreyttu inntökupróf í Læknadeild en þetta árið sóttu á fimmta hundrað um að þreyta próf.  Mest fjölgun í einstökum námsgreinum er jarðeðlisfræði, kínversku, frönsku, efnaverkfræði, rafmagns- og tölvuverkfræði, lífefnafræði, alþjóðlegu námi í menntunarfræði, tannsmíðum og geislafræði þar sem fjölgun umsókna er um og yfir 100 prósent.

Af öðrum fræðasviðum má nefna að umsóknir um grunnnám á Félagsvísindasviði eru 1.342, 869 á Hugvísindasviði, 858 á Verkfræði- og náttúruvísindasviði og 698 sækja um grunnnám við Menntavísindasvið.

Háskóli Íslands hefur vaxið gríðarlega síðustu ár. Skólinn stækkaði um fjórðung við sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands 1. júlí 2008 og svo aftur um 20% við inntöku nýnema síðasta haust.  Vöxturinn heldur því áfram af miklum krafti á næsta misseri miðað við framangreindar tölur, en við skólann eru nú í boði 378 námsleiðir.

Fjöldi umsækjenda um grunnnám á einstökum fræðasviðum Háskóla Íslands
Alls sóttu 960 nemendur um nám við deildir Heilbrigðisvísindasviðs miðað við 731 í fyrra.  Umsóknum þar fjölgar um 31% og er aukning veruleg í öllum deildum.  Umsóknum um nám í tannsmíði fjölgar mest eða um meira en 200% milli ára.  Áhuginn eykst einnig verulega í geislafræði þar umsóknir rösklega tvöfaldast.  Áhugi er einnig verulegur á lífeindafræði þar sem umsóknum fjölgar um liðlega 60% og næringarfræði og lyfjafræði bæta einnig verulega við sig, eða ríflega 30% hvor grein.  Flestar umsóknir á Heilbrigðisvísindasviði bárust í BS-nám í sálfræði eða 381 sem er 21% meira en í fyrra.

Umsækjendur um grunnnám á Verkfræði- og náttúruvísindasviði eru 858 og er aukningin á milli ára um 14%.  Aukinn áhugi er á flestum náttúruvísindagreinum og kemur ekki á óvart mjög aukin ásókn í jarðvísindi.  Umsóknir eru meira en tvöfalt fleiri í jarðeðlisfræði milli áranna 2009 og 2010 og sömuleiðis í lífefnafræði og efnaverkfræði.  Gríðarleg aukning er jafnframt í rafmagns- og tölvuverkfræði en 85 sóttu um nám í þeirri grein og er aukningin hartnær 60%.  Þá er veruleg aukning á umsóknum um nám í jarðfræði og eðlisfræði, eða yfir 30% í báðar greinar, og umsóknum um nám í hugbúnaðarverkfræði fjölgar næstum jafn mikið.

Á Hugvísindasviði sóttu 869 um grunnnám miðað við 745 í fyrra sem er 16% fjölgun.  Fjölgun er í flestum deildum sviðsins en áhugi á erlendum tungumálum eykst verulega.  Enska dregur til sín 154 nýja nemendur til samanburðar við liðlega 95 í fyrra og er hún orðin vinsælasta greinin á Hugvísindasviði.  Umsóknum fjölgar um 161% í frönsku og um 110% í kínversk fræði en áhuginn á sænsku er tvöfalt meiri en í fyrra.  Athygli vekur mjög aukin sókn í kvikmyndafræði, sem er nýleg grein í Háskóla Íslands, en meira en 60 nemendur munu hefja nám í kvikmyndafræði næsta vetur samanborið við 33 í fyrra.  Þá sækja almenn málvísindi mjög í sig veðrið og eru umsóknir í þá grein 80% fleiri en í fyrra.  Íslenska er einnig í sókn með nær 40% aukningu milli ára.

Alls sóttu 1.342 um grunnnám á Félagsvísindasviði miðað við 1.336 í fyrra og er því fjölgunin óveruleg.  Mest fjölgun á fræðasviðinu er í mannfræði, eða rösklega 50% og aukningin er 39% í bókasafns- og upplýsingafræði.  Aukinn áhugi er á ný í viðskiptafræði en umsóknum fjölgar um 34% í greininni og er hún nú aftur orðin sú vinsælasta á Félagsvísindasviði.  Hartnær 350 hyggjast hefja nám í viðskiptafræði næsta vetur.  Annar stærsti nýnemahópurinn skráir sig til náms í lögfræði eða 330 talsins.  20% fleiri vilja nú hefja nám í hagfræði en hófu nám í þeirri grein í fyrra.  Þá aukast vinsældir þjóðfræðinnar en 64 hyggjast hefja nám í henni á komandi hausti samanborið við 55 í fyrra.

Heildarfjöldi umsókna um grunnnám á Menntavísindasviði Háskóla Íslands er svipaður milli 2009 og 2010.  Umsóknum um alþjóðlegt nám í menntunarfræðum fjölgar þó mikið, eða um 212%.  Mikil aukning er í einnig í nám í tómstunda- og félagsmálafræði eða 70% og umsóknum um nám í uppeldis- og menntunarfræðum og í þroskaþjálfafræðum fjölgar um rösklega þriðjung.  Flestar umsóknir um nám á Menntavísindasviði eru í grunnskólakennarafræði eða 234.  Heildarfjöldi umsókna um grunnnám á Menntavísindasviði er 698.

 


11.6.2010 10:57


deila á facebook
UI runs a Nordic super-...

A Nordic super-computer lab will be operated in Iceland in co-operation between the University of Iceland and three other Nordic institutions. Representatives of the University have finalised an agreement on running the lab for three years. The University of Iceland was among three Nordic...

Baldur Þórhallsson
Insignificant changes in...

“The objective of the study was to examine whether the economic collapse had changed the evaluation of interests regarding membership of the European Union among Icelandic political parties, and if they had changed their policies regarding membership in its aftermath”, says Baldur Þórhallsson,...

The Icelandic Economic...

Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir Dean of the School of Engineering and Natural Science will present the findings from a research that was done on the Icelandic
economic collapse. The name of the research is "The Icelandic Economic Collapse – A systems Dynamics Perspective."

The meeting...

Vilhjálmur Árnasons
Are Icelanders An Immoral...

Vilhjálmur Árnason, professor of philosophy at the University of Iceland, as well as chair of the board of the Centre for Ethics at the university, was interviewed in the May issue of The Grapevine, alternative magazine issued in English.