Nám
Námsleiðir í Viðskiptafræðideild
Að hefja háskólanám er þýðingarmikil ákvörðun í lífi hvers einstaklings. Með náminu er verið að ná í þekkingu og þjálfa vinnubrögð sem nýtast munu í lífi og starfi. Í Háskóla Íslands hefur sérhver nemandi einstakt tækifæri til að læra og eflast í virku samstarfi við framúrskarandi kennara og frábæra samnemendur. Ákvörðun um háskólanám í viðskiptafræði gefur nemendum möguleika á afar fjölbreyttum störfum, bæði sérfræðistörfum og stjórnunarstörfum.
Grunnnám
Í BS námi í viðskiptafræði eru fjögur kjörsvið en einnig er boðið upp á nokkrar námsleiðir fyrir nemendur sem vilja taka viðskiptafræði sem 60 eininga aukagrein. Einnig geta nemendur tekið BS nám með vinnu.
Framhaldsnám
Í MS námi í viðskiptafræði er boðið upp á fimm MS námsleiðir og eina MA námsleið. Einnig er boðið upp á M.Acc. í reikningshaldi og endurskoðun og MBA nám.
Doktorsnám
Deildin býður upp á doktorsnám sem lýkur með Ph.D. gráðu. Doktorsnám í Viðskiptafræðideild byggir að mestu á sjálfstæðum rannsóknum nemanda undir handleiðslu kennara.
Skiptinám
Nemendum í Viðskiptafræðideild stendur til boða að taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla og fá það metið til eininga heima fyrir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins (ask@hi.is) hefur umsjón með nemendaskiptum og aðstoðar nemendur við umsóknir um skiptinám. Alþjóðaskrifstofan er til húsa í Háskólatorgi.
Courses taught in English Academic year 2011 - 2012
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar





