Háskóli Íslands er rannsóknarháskóli og leggur mikla áherslu á rannsóknir á flestum sviðum þjóðlífsins. Deildir innan Félagsvísindasviðs eiga gott samstarf við fjölmargar stofnanir og rannsóknarmiðstöövar sem sinna útgáfu, rannsóknum og þróunarstarfi af ýmsu tagi.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir samstarfsstofnanir deilda á Félagsvísindasviði.

Félags- og mannvísindadeild:

Félagsráðgjafadeild

Hagfræðideild

Lagadeild

Stjórnmálafræðideild

Viðskiptafræðideild

Félagsvísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun sem heyrir undir þrjár af deildum Félagsvísindasviðs, Félags- og mannvísindadeild, Félagsráðgjafardeild og Stjórnmálafræðideild. Undir hatti Félagsvísindastofnunar eru svo starfrækt 14 rannsóknasetur og rannsóknastofur á fræðasviðum deildanna þriggja sem að stofnuninni standa, auk þess sem stofnunin er í nánu samstarfi við fræðimenn deildanna og aðrar rannsóknastofnanir innan Háskóla Íslands og utan.

Félagsvísindastofnun er framkvæmdaraðili Þjóðarspegilsins, árlegrar ráðstefnu um félagsvísindi. Í tengslum við hana er gefið út glæsilegt ráðstefnurit sem hefur að geyma greinar allra erinda á ráðstefnunni.

Ferðalag um Háskóla Íslands