Konfúsíusarstofnunin Norðurljós

KonfúsíusarstofnunKonfúsíusarstofnunin Norðurljós var stofnsett þann 16. maí 2008. Hún er á meðal 316 sambærilegra stofnana sem starfræktar eru við háskóla um allan heim. Tilgangur stofnunarinnar er að stuðla að námi í kínverskri tungu sem og fræðslu um kínverska menningu og samfélag.

Háskóli Íslands stendur að rekstri stofnunarinnar í samstarfi við Hanban, sem heyrir undir kínverska menntamálaráðuneytið, og Ningbo háskóla sem er í samnefndri hafnar- og viðskiptaborg í Zhejiang-fylki í Kína. Á skólaárinu 2008-9 dvöldu átta íslenskir nemendur við skólann í skiptinámi.

Kínverskir sendikennarar dvelja við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós í tvö ár í senn og annast að mestu kínverskukennslu við Háskóla Íslands. Einnig hafa þeir kennt námskeið í umsjón Konfúsíusarstofnunar við Endurmenntun Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

Konfúsíusarstofnunin stendur reglulega fyrir ýmsum viðburðum á sviði kínverskra fræða. Einnig hefur hún umsjón með stöðluðum kínverskuprófum (HSK - Hanyu shuiping kaoshi) og gefur út viðurkennd prófskírteini.

Stefnt er að því að efla þjónustu við framhaldsskóla til að auðvelda þeim að auka fræðslu og námskeið er tengjast kínversku máli, samfélagi og menningu. Í því felst m.a. hönnun námsefnis á íslensku í samstarfi við Skólavefinn ehf.

 

Konfúsíusarstofnunin Norðurljós

Kínversk fræði við HÁSKÓLA ÍSLANDS

konfusius@hi.is | www.konfusius.hi.is