Háskóli Íslands

Annað nám

Háskóli Íslands hefur þá sérstöðu meðal hérlendra háskóla að bjóða upp á afar fjölbreytt nám og það gerir stúdentum kleift að blanda saman greinum af ólíkum fræðasviðum og öðlast þannig menntun sem er einstök. Eftirspurn eftir fólki með fjölbreytta menntun eykst sífellt og Háskóli Íslands hefur brugðist við þeirri þróun með því að auðvelda nemendum að stunda nám í fleiri en einni námsgrein og með því að bjóða fjölbreytt þverfræðilegt nám, endurmenntun og símenntun.