Vísindasvið

Hlutverk vísindasviðs er að annast sameiginleg málefni Háskólans er lúta að rannsóknum, svo sem ráðgjöf við akademíska starfsmenn og stofnanir. Vísindasviði er ætlað að stuðla að samstarfi milli deilda og stofnana á vettvangi rannsókna. Vísindasvið starfar í nánum tengslum við vísindanefnd háskólaráðs. Helstu verkefni sviðsins lúta að rannsóknatengdum sjóðum, mati á störfum akademískra starfsmanna, störfum dómnefnda og staðtölum um Háskólann. Skrifstofan er í norðurálmu Aðalbyggingar. Sími 525 5242.

Starfsmenn vísindasviðs

Háskóli Íslands hefur keypt aðgang að Journal Citation Reports, sem er einn af grunnum Web of Science (Arts & Humanities Citation Index, Social Science Index og Science Citation Index). 2006 útgáfa Journal Citation Reports, sem Háskólinn hefur nú aðgang að, sýnir ýmsa stuðla fyrir alþjóðleg vísindatímarit, þar á meðal áhrifastuðul (Impact Factor) tímarita. Grunnurinn er aðgengilegur í gegnum tölvur með nettengingu frá Háskóla Íslands. Veffangið er http://isiknowledge.com og er grunnurinn valin úr flettilista efst á síðunni.

The University of Iceland Policy 2006 -2011 (informal translation)

Auðkenning ritverka með nafni Háskóla Íslands

Nýtt Matskerfi fyrir háskóla

Verkefni sviðsins:

Sjóðir

Sérstakur stuðningur til öflugra rannsóknahópa við Háskóla Íslands

Upplýsingar um launataxta

Framtal starfa

Grunnmat

Umsóknir um framgang

Aldursafsláttur

Vísindanefnd

Doktorsnám

Rannsóknagagnasafn Íslands - RIS

Ritaskrá Háskóla Íslands

Yfirlit yfir umsóknarfresti í sjóði

Handbók um styrki (stúdentar)

Upplýsingar um rannsóknir í staðtölum H.Í.

Styrkjamöguleikar í samkeppnissjóði

Önnur verkefni vísindasviðs

Journal Citation Reports