Viðar Halldórsson var ráðinn verkefnisstjóri á Félagsvísindastofnun frá 10. janúar 2011. Starfið felst í rannsóknar- og greiningarvinnu, stýringu og greiningu á megindlegum sem og eigindlegum rannsóknum.
Viðar er á lokaári með doktorsverkefni sitt við Háskóla Íslands og hefur grunnmenntun sína einnig frá HÍ. Hann tók eins árs “Masters Diploma” við University of Leicester í Englandi.
Viðar hefur starfað á sviði félagsvísinda og gegndi lektorsstöðu bæði við Kennaraháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík auk þess að vera sviðsstjóri um tveggja ára skeið á íþróttafræðasviði. Viðar rekur í dag lítið fyrirtæki Melar Sport ehf. sem er ráðgjafar- og umboðsskrifstofa fyrir íþróttafólk.
Félagsvísindastofnun hefur er til húsa í Gimli, Sæmundargötu 10 og hefur Viðar netfangið vih2@hi.is og síma 525 5407.
Háskóli Íslands býður Viðar velkominn til starfa.
