Læknadeild er ein sex deilda á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Innan hennar eru starfræktar námsbrautir í geisla- og lífeindafræði sem eru ungar og framsæknar námsbrautir. Markmið þeirra er að stuðla að rannsóknum í geisla- og lífeindafræði, skapa frjótt starfsumhverfi fyrir nemendur og kennara, þannig að nemendur sem útskrifast hafi fjölþætta þekkingu og séu eftirsóttir til vinnu á rannsóknastofum á heilbrigðissviði og víðar.
Auglýst er laust til umsóknar 50% starf verkefnisstjóra á skrifstofu námsbrauta í geisla- og lífeindafræði.
Helstu verkefni:
- Daglegur rekstur
- Þjónusta og upplýsingaveita til nemenda og kennara
- Skjalavarsla
- Undirbúningur fyrir viðburði
- Undirbúningur fyrir fundi og úrvinnsla þeirra
- Vinna við kennsluskrá
- Stundaskrárgerð og stofubókanir
- Undirbúningur fyrir brautskráningu
- Undirbúningur og vinna við prófahald
- Gert er ráð fyrir samvinnu við starfsmenn annarra námsbrauta og/eða deilda
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist starfi er æskilegt
- Reynsla á sviði skrifstofustarfa og skjalavörslu
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í starfi
- Reynsla af störfum í háskólaumhverfi er kostur
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknafrestur er til og með 27. febrúar nk.
Umsóknir sem greina frá menntun og fyrri störfum skulu sendar til starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu við Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík, eða á netfangið starfsumsoknir@hi.is. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Nánari upplýsingar veitir Þórana Elín Dietz, starfsmannastjóri á Heilbrigðisvísindasviði í síma 525 5946 eða með tölvupósti á netfangið thorana@hi.is.
