Verkefni markaðs- og samskiptasviðs

Markaðs- og samskiptasvið stuðlar að því að ytri og innri hagsmunahópar hafi skýra mynd af hlutverki Háskólans. Helstu verkefni markaðs- og samskiptasviðs ráðast að miklu leyti af áherslum sviðsins. Sviðið mótar markaðs-, kynningar- og ímyndarstarf Háskólans í heild sinni í samvinnu við rektor Háskóla Íslands, háskólaráð og markaðs- og kynningarráð Háskólans. Markaðs- og samskiptasvið samþættir starfið milli einstakra eininga.

Í þessu sambandi má nefna víðtæka upplýsingamiðlun um starf inn Háskólans eftir helstu boðleiðum sem tiltækar eru. Hér er m.a. átt við miðlun á vefsvæði Háskólans, fjölþætt samskipti við fjölmiðla, gerð, hönnun og útgáfu kynningarefnis, umsjón með stærri viðburðum Háskólans. Undir það síðasttalda falla kynningar á námsleiðum Háskólans fyrir framhaldsskólanema og hagsmunaaðila auk úthlutunar styrkja á vegum skólans. Markaðs- og samskiptasvið ber ábyrgð á samskiptum við hollvini, velunnara og stjórnir styrktarsjóða Háskólans, samfélagslegri vísindamiðlun auk ráðgjafar og fræðslu um markaðsmál sem veitt er innan Háskólans.

Í megindráttum eru verkefni markaðs- og samskiptasviðs eftirfarandi:

  • Mörkun stefnu um fagleg innri og ytri samskipti Háskóla Íslands.
  • Yfirstjórn ytri vefs og mörkun vefstefnu í samvinnu við sérstakan vefstjórnarhóp.
  • Eftirfylgni við framangreindar stefnur.
  • Upplýsingamiðlun á innri vef og þróun hans.
  • Samskipti við fjölmiðla.
  • Stjórnun viðburða á vegum Háskóla Íslands ásamt faglegri ráðgjöf og aðstoð í tengslum við viðburði. 
  • Útgáfa markaðs-, kynningar- og fréttaefnis í nafni Háskóla Íslands.
  • Aðstoð og ráðgjöf við vinnslu markaðs- og kynningarefnis fyrir allar einingar.
  • Auglýsingamál Háskóla Íslands.
  • Mótun hollvinastarfs og innleiðing á slíku starfi.
  • Umsjón og umsýsla með starfsemi Styrktarsjóða Háskóla Íslands.
  • Gerð samninga við samstarfsaðila um markaðs- og kynningarmál.