Veldu HÍ

Háskóli ÍslandsÞað markar tímamót í lífi hvers einstaklings að skrá sig í háskóla og því skiptir miklu máli að vanda valið. Háskólanám getur opnað ótal dyr að framtíðinni og auðgað líf stúdenta. Á þessari síðu getur þú fundið upplýsingar sem hjálpa þér að velja nám við hæfi og stuðla að því að þú nýtir veruna í Háskóla Íslands sem stökkpall inn í framtíðina.
HÍ í hnotskurn
  •     16.000 nemendur stunda nú nám við HÍ
  •     2008 útskrifuðust um 2.000 kandídatar
  •     Yfir 400 námsleiðir í boði
  •     3.000 framhaldsnemar þar af 280 doktorsnemar
  •     Yfir 45.000 brautskráðir nemendur
  •     Um 620 fastráðnir kennarar og sérfræðingar
  •     HÍ nýtur trausts 90% landsmanna
  •     550 erlendir samstarfsskólar og samningar
  •     Yfir 2.800 námskeið í boði
  •     100.000 fermetrar fyrir visku og hugsjón
  1. Af hverju HÍ?

    Engin skólagjöld
    Öflugt félagslíf
    Skýr framtíðarsýn
    Lang mesta námsframboðið
    Sveigjanlegt nám
    Fjölskylduvænn skóli
    Frábær námsaðstaða
    Öflugt alþjóðasamstarf
    Einn af hornsteinum samfélagsins
  2. Engin skólagjöld

    Háskóli Íslands metur nemendur sína vegna hæfileika þeirra og metnaðar, ekki vegna þess að þeir borga háar fjárhæðir til skólans.
  3. Öflugt félagslíf

    Háskólanám snýst ekki aðeins um að mæta í fyrirlestra og læra heima heldur er félagslífið einnig afar mikilvægt. Tugir nemendafélaga starfa í Háskólanum, bæði innan og utan deilda hans. Stúdentaleikhúsið, Háskólakórinn, Stúdentablaðið og Félag hinsegin stúdenta eru fáein dæmi um það sem er í boði.
  4. Skýr framtíðarsýn

    Háskóli Íslands hefur skýra framtíðarsýn og stefnir að því að verða í fremstu röð háskóla í heiminum. Skólinn gerir miklar kröfur til sjálfs sín, kennara, stjórnenda og annars starfsfólks. Skólinn gerir einnig miklar kröfur til nemenda sinna og með því er tryggt að prófgráða frá Háskóla Íslands hafi öruggan gæðastimpil og njóti trausts um allan heim.
  5. Lang mesta námsframboðið

    Háskóli Íslands er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Skólinn skiptist í fimm fræðasvið sem skiptast í 3-6 deildir. Deildir eru samtals 25 og námsleiðir yfir 300. Allir geta fundið sér nám við hæfi í Háskóla Íslands.
  6. Sveigjanlegt nám

    Nám við Háskóla Íslands er mjög sveigjanlegt.
    Stúdentar geta sniðið námið eftir sínum þörfum, t.d. með vali á aðal- og aukagrein, með því að taka valnámskeið af öðrum fræðasviðum eða útskrifast af fleiri en einni námsleið. Mikil fjölbreytni í námsframboði auðveldar nemendum að afla sér menntunar sem er einstök og hentar hverjum og einum.
  7. Fjölskylduvænn skóli

    Háskóli Íslands er fjölskylduvænn.
    Börn stúdenta geta fengið leikskólapláss frá 6 mánaða aldri og á Stúdentagörðum eru fjölskylduíbúðir á viðráðanlegu verði. Mörg námskeið og námsleiðir eru kenndar í fjarnámi sem hentar fólki með lítil börn vel.
  8. Frábær námsaðstaða

    Frábær aðstaða til náms.
    Í flestum byggingum er lesaðstaða, aðstaða til hópavinnu og tölvuver með fullkomnum tækjabúnaði og hugbúnaði. Nemendur hafa aðgang að fullkomnasta bókasafni landsins og minni bókasöfn eru á mörgum fræðasviðum.
  9. Öflugt alþjóðasamstarf

    Háskóli Íslands er alþjóðlegur Háskóli Háskóli Íslands á samstarf við mörg hundruð erlenda háskóla og rannsóknarstofnanir um nemendaskipti, rannsóknir, starfsmannaskipti og fleira. Öllum nemendum Háskólans gefst kostur á að taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla og hundruð erlendra nema stunda árlega nám við Háskóla Íslands.
  10. Einn af hornsteinum samfélagsins

    Háskóli Íslands hefur lagt grunninn að framþróun íslensku þjóðarinnar og leikur lykilhlutverk í því að gera Ísland að þekkingarsamfélagi í fremstu röð. Margir leiðtogar þjóðarinnar og aðrir framámenn í þjóðfélaginu hafa stundað nám í Háskóla Íslands.
FyrriNæsta
Þú ert að nota: drupalcl1.rhi.hi.is