Starfsmönnum Háskóla Íslands gefst kostur á að leigja Fjöru og/eða Skála í Stakkahlíð fyrir einkasamkvæmi í samræmi við neðangreindar reglur:
- Unnt er að leigja annan salinn eða báða utan við opnunartíma mötuneytis. Þeir eru aldrei leigðir út nema til eins aðila á sama tíma. Salirnir eru leigðir með fastri borðauppröðun. Fjara (270 m2, 165 sæti) kostar 40.000 kr. en Skáli (130 m2, 50 sæti) kostar 25.000 kr. Leigutíminn er að hámarki í fjórar klukkustundir og aldrei lengur að kvöldlagi en til kl. 23:00. Frágangur og þrif eru ekki innifalin í leiguverðinu.
- Umsóknir um leigu salanna sendist með tölvupósti á gestaibudir@hi.is nauðsynlegt er að fram komi nafn og kennitala greiðanda og ábyrgðarmanns/leigutaka.
- Ef ábyrgðarmaður/leigutaki óskar eftir afnotum eldhússins á staðnum verður að semja sérstaklega við starfandi mötuneyti á MVS um það.
- Ábyrgðarmaður/leigutaki ber ábyrgð á frágangi/þrifum salanna eftir notkun þeirra. Unnt er að leita til rekstrar fasteigna um milligöngu við að útvega ræstingaverktaka til verksins ef þess er óskað. Umsjónarmaður eða öryggisvörður á vegum þjónustuaðila HÍ fer eftirlitsferð um húsið við lok leigutíma.
