Vefstefna

Tilgangur  

  • Að tryggja vefsetri HÍ heildstæða umgjörð og búning. Við uppbyggingu og þróun einstakra vefsvæða skal þessum verklagsreglum fylgt.

Umfang

  • Verklagsreglurnar ná til allra sem vinna efni á vefsetur HÍ en það spannar allt sem vistað er undir léninu hi.is.

Miðlun upplýsinga

  • Upplýsingar um sama efni mega ekki stangast á og tengja verður á milli síða frekar en margskrá sömu upplýsingar.
  • Allar upplýsingar á að setja fram á hnitmiðuðu og vönduðu máli, helst þannig að notandinn geti nálgast þær á einum skjáfylli.
  • Við vinnslu frétta skulu meginatriðin sett fremst, setningar skulu vera stuttar og markvissar, lýsingarorð spöruð og fyrirsagnir vera stuttar, knappar og lýsandi.
  • Við vinnslu tilkynninga um viðburði skulu meginatriðin sett fremst, setningar skulu vera stuttar og markvissar, lýsingarorð spöruð og fyrirsagnir vera stuttar, knappar og lýsandi.
  • Nota á málfar sem miðar við almennan lesanda og forðast á sérhæft eða tæknilegt orðafar.
  • Ætíð á að haga efni og framsetningu á þann hátt að það sé sem aðgengilegast fyrir alla vefgesti.
  • Framsetning efnis á ætíð vera í samræmi við vinnureglur vegna aðgengis fyrir fatlaða notendur og tekin eru fram í viðauka.
  • Stefna Háskóla Íslands er að farið verði eftir helstu aðgengisstöðlum fyrir fatlaða í vinnu við alla vefi háskólans.
  • Allar síður skulu hafa fyrirsagnir sem passa við heiti á síðunum.
  • Netföng, símanúmer og starfssvið umsjónarmanna einstakra vefsvæða skulu vera vel sýnileg til þess að notendur geti fyrirhafnarlítið sent fyrirspurnir og athugasemdir.
  • Ekki á að birta höfundaréttarvarið efni á vefjum HÍ nema með samþykki rétthafa og þá á að taka það fram.
  • Lögð er áhersla á að allar helstu upplýsinar varðandi nám við háskólann séu einnig til á ensku. Er það á ábyrgð vefstjóra fræðasviða að halda því við.
  • Val auglýsinga á forsíðu HÍ er á ábyrgð vefritstjóra og sviðsstjóra markaðs- og samskiptasviðs.
  • Vefritstjóri og sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs úrskurðar um álitamál tengdum efni.

    Útlit

    • Útlit vefja skal ekki stangast á við hönnunarstaðal HÍ. Útliti vefsvæðis Háskóla Íslands er stýrt með fyrirframgerðum sniðskjölum.
    • Sniðskjölin, sem gerð eru eftir hönnunarstaðli háskólans, ýta undir að útlit efnis sé alltaf samræmt, án tillits til hver uppruni þess er. Sniðskjölin gera það að verkum að hönnunarlegum forsendum er fylgt við innsetningu efnis að mestu, en það á við um myndbirtingu, lýsingu, letur og liti. Notandi verður þó að gæta þess að texti taki ekki með sér kóða úr upprunalegum textavinnslukerfum sem getur haft áhrif á hvernig textinn birtist á síðum.
    • Stefna Háskólans er að vefumsjónarkerfi geti leyst þennan þátt eins og best verður á kosið á hverjum tíma.
    • Letur og stærð er skilgreint í stílsniðum sem vefráð stýrir. Leturgerð er sjálfgefin sans-serif leturgerð á vélum vefgesta. Stærðir eru mismunandi eftir staðsetningu texta en lágmarksstærð er 10 punktar.
    • Merki HÍ með virkri krækju á www.hi.is er efst til vinstri á öllum vefsíðum þannig að notandinn komist á upphafssíðuna með einum músarsmelli.

    Myndir

    • Vefritstjóri hefur leyfi til þess að skipta út myndum ef þess er þörf að hans mati.
    • Viðeigandi myndir skulu fylgja öllum fréttum sem settar eru inn á vefsvæðið.
    • Ekki er æskilegt að setja inn myndir á efnissvæði á síðum sviða og deilda að óþörfu. 

    Gæði

    • Allar upplýsingar á vefjum HÍ eiga ævinlega að vera uppfærðar og réttar.
    • Starfsmenn hljóta ekki réttindi til að setja efni á vefsvæðið nema að undangengnu námskeiði í vefumsjónarkerfi því sem er í notkun á hverjum tíma. Vefstjóri sér til þess að námskeið séu haldin.
    • Vefmiðlarar og gagnagrunnsmiðlarar skulu stöðugt verndaðir með öryggisbúnaði sem nauðsynlegur þykir hverju sinni
    • Vefritstjóri getur lokað eða breytt aðgangi. Til dæmis ef aðgangur hefur ekki verið notaður lengi eða hann framseldur.
    • Vefriststjóri og vefráð hafa stöðugt auga með gæðum vefja og grípa til aðgerða til að viðhalda þeim og auka.

    Ábyrgð

    • Vefritstjóri Háskóla Íslands ber ábyrgð á vefstefnu HÍ og að henni sé framfylgt.
    • Vefritstjóri Háskóla Íslands ber ábyrgð á að kynna umsjónarmönnum einstakra vefsvæða vefstefnu og verklagsreglur.
    • Vefritstjóri skipuleggur og ber ábyrgð á uppbyggingu veftrés aðalvefsvæðis HÍ, vefsvæða fræðasviða og helstu sérvefja.
    • Vefstjórar sérvefja bera ábyrgð á úthlutun aðgangsréttinda á tiltekin vefsvæði.
    • Ábyrgðarmenn einstakra vefsvæða bera ábyrgð á efni þess svæðis og að það sé ætíð yfirlesið, uppfært og rétt.
    • Vefritarar bera alfarið ábyrgð á því efni sem birtist á vefjum í þeirra nafni.
    • Reiknistofnun Háskóla Íslands ber ábyrgð á rekstri vefmiðlara og gagnagrunna vefjanna og tryggir að þeir séu stöðugt verndaðir með öryggisbúnaði sem nauðsynlegur þykir hverju sinni.
    • Reiknistofnun Háskóla Íslands ber ábyrgð á að upptími vefsvæða Háskóla Íslands sé með því besta sem þekkist og að svartími vefsvæða Háskóla Íslands sé ávallt sambærilegt við það sem best gerist hjá fremstu háskólum í heimi. 

    Vefstefnan í heild sinni.