Valdimar Örnólfsson (f. 9. febrúar 1932), fimleikastjóri Háskóla Íslands.
Valdimar Örnólfsson hefur verið fimleikastjóri Háskóla Íslands síðan 1967. Í því starfi hefur hann stóreflt íþróttaiðkun og líkamsrækt af ýmsu tagi meðal stúdenta og starfsmanna skólans, bæði í keppni og leik. Sjálfur var hann m.a. Íslandsmeistari stúdenta í nokkrum greinum íþrótta og Frakklandsmeistari stúdenta á skíðum. Þeir eru ófáir, jafnt innan Háskólans sem utan, sem hann hefur kennt á skíðum. Framlag hans til félagslífs í skólanum er vel þekkt.
Því vill Háskólinn verðlauna Valdimar Örnólfsson fyrir framlag hans til íþróttamála og félagslífs í skólanum í áratugi.
