Valdimar Briem

Valdimar Briem var ráðinn forstöðumaður fræðaseturs á Austurlandi frá 1. ágúst 2009. Valdimar er löggiltur sálfræðingur, hefur doktorsgráðu í sálfræði frá háskólanum í Lundi frá árinu 1987. Hann lauk B.A.Honours prófi í sálfræði frá University College of North Wales (UCNW) árið 1969 og meistaragráðu frá sama skóla 1974. Valdimar stundaði jafnframat rannsóknir og fræðistörf á námsárum sínum.

Valdimar hefur starfað sem skólasálfræðingur á Íslandi og í Svíþjóð, var til margra ára lektor í sálfræði og uppeldisfræði við Háskólann í Halmstad og dósent við Háskólann í Lundi í suður Svíþjóð. Hann kemur úr starfi associated research professor við sálfræðideild Háskólans í Lundi, en þar sem hann hefur stýrt hópi sérfræðinga og doktorsnema við deildina, einkum við rannsóknir á öryggi barna og unglinga. Nýlega starfaði hann við atferlisvísindadeild háskólans í Kristianstad í Svíþjóð, þar sem hann var stjórnandi rannsóknarverkefnis um orsakir og áhrif dauðaslysa og sjálfsvíga á sænsku járnbrautunum. Valdimar hefur verið fræðilegur ráðgjafi í samvinnuverkefnum á sviði umferðarfræðslu á evrópskum vettvangi og er fulltrúi Íslands í norrænum samtökum um umferðarsálfræði, NORBIT (Nordic Organization for Behaviour In Traffic). Hann er ráðgjafi starfshóps samgönguráðuneytisins um framtíð umferðarfræðslu í skólum. Síðastliðin 14 ár hefur Valdimar starfað á Íslandi í ýmsum verkefnum tengdum Umferðarráði, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, Geðdeild háskólasjúkrahúss, Umferðarstofu, menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti.

Aðsetur Valdimars verður á fræðasetri Háskólans á Egilsstöðum, heimilisfang Tjarnarbraut 39a, 700 Egilsstöðum, sími 471 1400 / 867 6307 og netfang: vbriem@hi.is.